Menntamál - 01.08.1966, Page 18
104
MENNTAMÁL
Enn sem komið er geta nemendur aðeins lokið fyrri hluta
prófi í tæknifræði hér á landi, en seinni hluta námsins (2
ár) verða þeir að sækja til Danmerkur eða Noregs.
Fyrir eftirfarandi samanburð skiptir mestu máli, að gagn-
fræðanám í Danmörku og á íslandi tekur 10 ár, en í
Noregi 9 ár.
B. Fjöldi kennsludaga á ári.
Því miður verður ekki unnt að gera þessu atriði full-
komin skil, þar sem heimildir voru ónógar. Til dæmis er
ekki vitað, hvort mánaðarleyfi, lestrarleyfi og prófdagar eru
talin til kennsludaga í heimildum eða ekki. Ennfremur eru
kennsluhættir mjög mismunandi eftir löndum. Sums staðar
búa nemendur sig undir næsta dag í skólanum, og eru
þær stundir einnig taldar til kennslustunda. Þá er mjög
mismunandi, hve miklum tíma er varið til kynnisferða,
íþrótta, sýnikennslu og verklegra æfinga.
Einn helzti munur á tilhögun kennslu í unglinga- og
gagnfræðaskólum er fólginn í löngu sumarleyfi á íslandi.
Það er 3l/£—4 mánuðir hér á landi, en aðeins 6—7 vikur
í Danmörku og Noregi.
Kennsludagar á ári á íslandi eru taldir 163—167, og eru
prófdagar og lestrarleyfi ekki talin þar með. Yfirleitt er
kennt í 32—38 stundir á viku.
í Danmörku eiga kennslustundir á ári ekki að vera færri
en 1200, og má ekki kenna fleiri en 6 stundir á dag.
Kennt er í 30—34 stundir á viku og munu samkvæmt því
vera 200—220 kennsludagar á ári.
í Noregi er kennt í 38—40 vikur á ári og 6 daga í hverri
viku. Kennsludagar ættu því að vera 220—230 á ári, ef
áætlaðir hátíðisdagar eru dregnir frá. Kennt er í 36 stundir
á viku.
Samkvæmt þessu virðast Danir og Norðmenn kenna a.
m. k. 40 dögum lengur á ári en við, og er líklegt, að þess