Menntamál - 01.08.1966, Blaðsíða 31
MENNTAMÁL
117
legra æfinga, en lítið hefur verið um slíka kennslu í ís-
lenzkum skólum til þessa.
Bóklegt námsefni í eðlisfræði til íslenzks gagnfræðaprófs
(10. ár) virðist jafngilda bóklegu námsefni til prófs úr 2 R
(9. ár) í Danmörku og 8. bekk Plan II (erfiðasta námsefni)
í Noregi, en hins vegar læra íslenzkir nemendur nær ekkert
í efnafræði.
Athyglisvert er, að íslenzkir nemendur byrja mun seinna
á námi í eðlis- og efnafræði en nemendur hinna þjóðanna.
Norðmenn hefja kennslu þegar í 4. bekk (10 ára nemend-
ur) og Danir í 6. bekk (12 ára nemendur), en hér á landi
er ekki byrjað fyrr en í II. bekk (14 ára nemendur). Enn-
fremur eru aðeins 4 vikustundir ætlaðar til þessarar kennslu
á íslandi, en Danir og Norðmenn verja um 8 vikustundum
í svipað námsefni. Af þessum sökum gefst þeim einnig færi
á að framkvæma sýnikennslu og verklegar æfingar, sem varla
er tími til í íslenzkum skólum.
Á barnaprófi hafa norskir nemendur gert a. m. k. 20
tilraunir í eðlisfræði og líffræði og skila þeir skriflegum
skýrslum um niðurstöður. í 7.-9. bekk, Plan II, eru gerð-
ar minnst 30 verklegar æfingar í eðlisfræði og minnst 15
æfingar í efnafræði.
í Danmörku er fjöldi verklegra æfinga í eðlis- og efna-
fræði ekki ákveðinn, heldur fer hann eftir mati kennara.
í 3 R (TR) er þó skilyrði, að verklegar æfingar séu ekki
færri en 15.
Danskir gagnfræðingar hafa lesið allt námsefni í 3 R
(10. bekk) umfram íslenzka gagnfræðinga.
Námsefni undir Teknisk Realeksamen svipar einna helzt
til námsefnis í 4. bekk stærðfræðideildar í íslenzkum
menntaskólum. Til þess að ljúka Teknisk Realeksamen í
eðlisfræði og efnafræði í Danmörku þyrfti íslenzkur gagn-
fræðingur að sækja 5 kennslustundir á viku í 10 mánuði
og gera auk þess a. m. k. 15 verklegar æfingar.
Nemendur í Noregi, sem lokið hafa eðlisfræði samkvæmt