Menntamál - 01.08.1966, Page 38
124
MENNTAMÁL
telja þessa heimild ónauðsynlega, þar sem ekki ha£i hingað
til staðið á kennurum að sækja þau námskeið, sem skipu-
lögð ha£a verið. Á hinn bóginn telja þau þess fulla þör£ að
taka upp styrkjakerfi, sem geri enn fleiri kennurum það
fjárhagslega kleift að sækja námskeið að sumarlagi.
Einnig er um þessar mundir unnið að endurskoðun kenn-
aramenntunarinnar, en það verk á enn langt í land.
Sérskólaráðið.
Árið 1963 var komið á fót ráði sérfræðinga til að vera
kennslumálaráðuneytinu til aðstoðar í málum, sem varða
uppeldi og kennslu afbrigðilegra barna. Ráð þetta, sem
nefnt er Specialskolerádet og er undir forystu Per Kiil,
skólastjóra vanvitaskólans í Drammen, hefur verið með
eindæmum athafnasamt. Það hefur t. d. gert allsherjar út-
tekt á málum sérskólanna í Noregi, metið þörfina fyrir sér-
kennslu á öllum sviðum og lagt fram áætlun um uppbygg-
ingu þessa hluta skólakerfisins. Hið stórmerka verk ráðs-
ins, Om utbygging av specialskolene (96 bls. í stóru broti),
hefur kennslumálaráðuneytið fengið samþykkt í ríkisstjórn-
inni, og liggur það nú fyrir Stórþinginu til ályktunar sem
framtíðarstefna Norðmanna á þessu sviði.
Annað verk ráðsins er Undervisningsbygg for special-
skoler, leiðbeiningar eða öllu heldur reglur um húsnæði
sérskóla, skólahúsgögn, kennslutæki o. s. frv. Þriðja stóra
verk ráðsins kom út síðla sumars, og er það námsskrá (ásamt
kennslufræðilegum leiðbeiningum) fyrir vanvitaskólana.
Danmörk
Breytt kennaramenntun í Danmörku.
Frumvarpið um breytta kennaramenntun í Danmörku,
sem mikill styrr hefur staðið um, verður væntanlega tekið
til lokaafgreiðslu og lögfest á þessu ári. Með því er stefnt