Menntamál - 01.08.1966, Page 107
MENNTAMÁL
193
unum. Það hefur að sjálfsögðu tekið hina nýju menn nokk-
urn tíma að kynna sér málavoxtu.
Við þetta bætist svo, að ráðuneytisstjóri fjármálaráðu-
neytisins hefur verið frá störfum að undanförnu vegna
veikinda, og hefur reyndar nýlega verið skipaður til ann-
ars starfs, en enginn nýr ráðuneytisstjóri verið skipaður í
hans stað.
Formannaráðstefna S.Í.B.
Á sambandsstjórnarfundi 19. okt. 1964 var samþykkt að
boða til ráðstefnu með formönnum allra svæðasambanda
S.I.B. Ráðstefna þessi var haldin í húsakynnum sambands-
ins í Reykjavík 29. nóv. 1964.
Ráðstefnu þessa sóttu flestir formenn svæðasambandanna.
Var aðallega rætt um launa- og kjaramál barnakennara
vegna væntanlegra samninga o. fl.
Ráðstefnan samþykkti m. a. að krefjast sömu launa á
öllu skyldustiginu miðað við sömu menntun. Þá var einnig
samþ. að vekja athygli á því misræmi, sem skapazt hafði
vegna hækkunar framhaldsskólakennara um launaflokka.
Árangur þessarar ráðstefnu var m. a. sá, að stjórnir nokk-
urra svæðasambanda beittu sér fyrir undirskriftum meðal
barnakennara eða sendu álit sjálfar, þar sem bent var m. a.
á, að barnakennarar myndu ekki una því, að tveggja til
þriggja flokka munur væri á kennurum skyldunámsstigsins
1 launastiganum. Álit þessi voru send samninganefnd ríkis-
ins og Kjararáði.
Ymis mál.
a)) Flokkahœkkun. Síðasta fulltrúaþing samþykkti m. a.
kröfu um, að barnakennarar fengju þá þegar launaflokka-
hækkanir sambærilegar við þær, sem ríkisstjórnin hafði
13