Menntamál - 01.08.1966, Page 109
MENNTAMÁL
195
á þá leið, að veita bæri kennara þessum kennsluafslátt, þar
sem sannað þótti, að hann kenndi afbrigðilegum börnum.
Eftir að dómur þessi féll, var aftur reynt að fá settar al-
mennar reglur um þetta, en það hefur enn ekki borið
árangur, þrátt fyrir mikinn eftirrekstur. Menntamálaráðu-
neytið skipaði að vísu nefnd, sem athuga skyldi mál þetta,
en lítið hefur frétzt af störfum hennar til þessa.
c) Bókasafn S.Í.B. Á síðasta fulltrúaþingi var samþykkt,
að komið skyldi á fót bókasafni í húsakynnum sambandsins.
Sambandsstjórn leitaði til Ríkisútgáfu námsbóka, Fræðslu-
málaskrifstofunnar og Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur um
lán bóka í safnið. Hefur safnazt allmikið af bókum frá
þessum aðilum. Er hér um að ræða bækur um uppeldismál,
kennslubækur, barnabækur o. fl., flestar á ensku og Norð-
urlandamálum. Ákveðið var að skrásetja skyldi safnið eins
fullkomlega og unnt væri. Var frú Guðrún Gísladóttir ráð-
in til þess starfs, og er það nú vel á veg komið. Ekki hefur
endanlega verið gengið frá skipulagsskrá safnsins, en í at-
hugun er, hvort lánað verður út af safninu eða hvort ein-
ungis verður þar opin lesstofa. Sambandsstjórn sótti um
styrk til Alþingis vegna bókasafnsins o. fl. Alþingi varð við
beiðninni og veitti S.Í.B. 100.000,00 kr. styrk árið 1965 og
1966.
d) Sjónvarpsmálið. Hinn 11. febrúar sl. sendi stjórn S.
EB. Alþingi og ríkisstjórn tilmæli, þar sem farið var frarn
á, að sjónvarpssendingar frá Keflavíkurflugvelli yrðu tak-
markaðar við herstöðina eina, um leið og íslenzkt sjónvarp
tekur til starfa.
Stjórn Stéttarfélags barnakennara í Reykjavík skrifaði
stjórn S.Í.B. bréf 25. febrúar sl„ þar sem skorað var á sam-
bandsstjórn að gangast fyrir undirskriftasöfnun meðal barna-
kennara undir áskorun til Alþingis og ríkisstjórnarinnar
þess efnis, að sjónvarpssendingar frá Keflavíkurflugvelli
yerði takmarkaðar við herstöðina þar á staðnum.