Menntamál - 01.12.1969, Qupperneq 49
MENNTAMAL
255
sem setiir vorn í stöður, sendi þeim Menntamál og inn-
heimti svo af þeim árgjald. En þetta skapaði nokkra festu
í fjármálum ritsins og sambandsins. Þá var ekki nokkrum
manni greidd þóknun lyrir vinnu að félagsmálum S.Í.B.
og taldi enginn slíkt eftir sér. Ég tel, að útgáfa Mennta-
mála hafi verið mjög mikilvæg fyrir kennarastéttina. I
jDeim hefur bit'zt fjöldi merkra greina um uppeldis- og
skólamál auk upplýsinga um félags- og réttindamál stétt-
arinnar. En því miður hafa Menntamál aldrei náð út-
breiðslu meðal almennings. Ég álít J^að hollt fyrir ungu
kennarana að kynna sér Menntamál fyrri ára.
Eitt af mikilvægustu hagsmunamálum kennara hefur
verið lífeyrissjóður þeirra. Hægt er að segja, að vísir að
honum væri Styrktarsjóður kennara, sem stofnaður var með
löeum 1909. A ársfundi í Hinu íslenzka kennarafélagi
1908 bar Magnús Helgason fram tillögu um |>essa sjóðs-
stofnun. 1921 er svo Lífeyrissjóður barnakennara stofnað-
ur. Fyrir ötula baráttu kennara hefur sjóðurinn eflzt, og
]>að öryggi, sem hann veitir kennurum, er láta af störfum,
stöðugt farið vaxandi. Skömmu eftir 1930 fengu kennarar
J)ví framgengt, að Jteir fengju lán úr sjóðnum til íbúða-
bygginga. Með j>ví var markaður nýr þáttur í starfsemi
sjóðsins til mikilla hagsbóta fyrir sjóðsfélaga.
Þótt ýmislegt fleira mætti neína, er víst mál að linni.
Því er ekki að leyna, að oft var þungt fyrir fæti í baráttu
S.Í.B. á lyrstu áratugum þess, en smátt og smátt hættu þó
valdhafar þjóðfélagsins að líta á samtökin eins og ein-
hverja markleysu, sem hvorki þyrfti að hlusta á né taka
tillit til. Öll J>au ár, sem ég var í sambandsstjórn, var sam-
vinna í stjórninni mjög góð. Þótt stjórnarkosningar væru
stundum sóttar af kappi, þá unnu allir saman í eindrægni
að málefnum stéttarinnar, hvar í flokki sem ]>eir annars
voru.
Margar góðar og skemmtilegar minningar á ég frá ]>ess-
um árum með ágætum félögum. Lengst og nánast var