Menntamál - 01.12.1969, Side 97
MENNTAMÁL
303
KENNSLUFRÆÐI
Höf: Jon Naeslund o. £1.
Útg.: Hlaðbúð.
Skólastjóri Kennaraskóla íslands, Broddi Jóhannesson, skrifar for-
mála fyrir bókinni, og þaðan fær maður vitneskju um, að þýðendur
eru tveir, Guðrún Ólafsdóttir cand. mag. og Sigurður Gunnarsson
æfingakennari.
Sá skrýtni háttur hefur verið hafður á að þýða bókina úr norsku,
þótt lnin sé skrifuð á sænsku, en eílaust á þetta einhverjar orsakir,
sem ég kem ekki auga á. Þótt svo sé að „Margt gerist í norskum
skólum, sem íslendingum má vera til fyrirmyndar,“ tel ég Jtað ekki
næga ástæðu til Jjess, að norska þýðingin verður fyrir valinu til
útgáfu hér. Þeim norsku fyrirmyndum, sem við vildum ná í, gætum
við náð eftir beinni leiðum.
Einnig fær maður vitneskju urn Jtað, að „Rækilegar skrár um
fræðibækur ýmsar, er fylgja einstökum köflum bókarinnar, liafa
verið felldar niður í íslenzku útgáfunni, þar eð einsætt þótti, að
islenzkir lesendur myndu ekki eiga þeirra kost.“ Ekki get ég fallizt
á það sem haldbær rök fyrir niðurfellingu skránna, að íslenzkir les-
endur eigi Jteirra ekki kost. Allflestar bókaverzlanir landsins eru
fúsar til að panta bækur fyrir hvern sem er, og tel ég það mikinn
skaða og skemmd á bókinni, að lesendur hennar skuli ekki geta
notið jiess hagræðis að fá bendingar um fagrit, svo fremi J)au séu
einhvers virði.
Ekki hafa þó öll fagrit verið strikuð út af síðum þessarar bókar.
Á blaðsíðu 200 er listi yfir nokkrar bækur, og á blaðsíðu 201 eru
talin upp nokkur tímarit urn uppeldismál. Eitt er þó J>að tímarit,
sem gefið er út um uppeldismál á öllurn tungum Norðurlandanna,
nema íslenzku, og ég sakna hér. Þetta tímarit er Nordisk tidsskrilt för
secialpedagogik. Ekki er mér kunnugt um J)að, livort Jjað' hefur
vantað í upptalningu frumútgáfunnar eða Jtað hefur verið fellt
burtu vegna fyrirsjáanlegra erfiðleika íslenzkra lesenda að afla Jjcss.
Kennararnir Jónas Pálsson sálfræðingur og Þráinn Guðmundsson
yfirkennarí hafa báðir stuðzt við handrit bókarinnar i kennslu við
Kennaraskólann og bent á margt, sem betur mátti fara. Indriði
Gíslason cand. mag. bjó handritið undir prentun og Sigrún Árna-
dóttir las aðra próförk. Þessi upptalning ber Jtað með sér, að mikið
hefur verið gert til Jjcss af aðstandendum verksins, að Jjað mætti
vel takast.
Þegar formála lýkur, tekur við mjög aðgengilegt efnisyfirlit. Það
er ómetanlegur kostur hverrar bókar og ekki sízt svona verks, sem