Æskan - 01.10.1970, Side 5
EIN
KYR
ER
NÓG
að var einu sinni kona, sem átti tvö lítil börn. Hún
var svo fátæk, að hún gat með naumindum fætt
þau. — ,,Það er gott að ég á geitina," sagði konan.
„Börnin drekka geitamjólkina með þurru þrauðinu og hafa
hana út á grautarögnina. En hvorttveggja er, því miður,
af skornum skammti, og auk þess get ég stundum búið
til ofurlítið af smjöri."
Dag nokkurn, er konan var að vinna í garðinum sínum,
bað hún drenginn að fara með geitina út að skurðargarð-
inum til þess að hún gæti fengið I svanginn.
í þessu bili kom ókunnugur maður og lítil stúlka. Þau
gengu til konunnar. Maðurinn sagði: „Litla stúlkan mín er
mjög þreytt, svöng og þyrst. Áttu ekki matarbita og mjólk-
ursopa handa henni. Ég er fátækur og get ekki borgað
fyrir þennan greiða. En ég mun verða þér afar þakklátur,
ef þú gerir það, sem ég bið um. Stelpan þarf að fá hress-
ingu.“
Konan svaraði: „Hér er ekki um auðugan garð að gresja.
En ég á dálítinn mjólkurslatta og brauðbita, og það skaltu
fá handa litlu stúlkunni."
En þetta var matur sá, er konan hafði ætlað að neyta að
loknu dagsverki sínu í garðinum. En hún var svo greiðug
og hjálpfús, að hún hikaði ekki við að taka allt ætt, sem
hún átti, og gefa ókunnugum.
Litla stúlkan borðaði brauðið og drakk mjólkina og
hresstist bersýnilega af því.
Er þau voru að fara, sagði maðurinn við konuna: „Hvers
óskar þú mest af öllu?“
Konan svaraði: „Mig langar mest til þess að eignast kú.
Ef ég ætti kú, gætu börnin og ég fengið alla þá mjólk, er
við þörfnumst. Ennfremur fengjum við nægilegt smjör."
Maðurinn sagði: „Réttu mér rekuna."
Konan gerði það. Og maðurinn sló með rekunni á stein.
Samstundis stóð indæl kýr hjá þeim. Konan varð mjög
forviða.
Maðurinn mæiti: „Þú mátt eiga kúna. Þetta er borgun
fyrir matinn, er þú tókst frá munninum á þér til þess að
seðja litlu stúlkuna. Ég vona að kýrin verði þér til ham-
ingju.“
Konan varð bæði glöð og hissa og kom ekki upp nokkru
orði. Hún góndi á kúna. En maðurinn og litla stúlkan lögðu
af stað.
Svo datt konunni í hug, að tvær kýr væru betri en ein.
Ef hún ætti tvær kýr, gæti hún selt mjólk og keypt
ýmislegt, sem hana vanhagaði um. Hún hélt á rekunni, er
maðurinn notaði, þegar hann töfraði íram kúna. Og henni
datt í hug, að hægt væri að fá aðra kú á sama hátt. Hún
ákvað að gera tilraun.
Svo barði hún með rekunni á steininn. En það var ekki
kýr, sem kom fram, heldur gráðugur úlfur, Hann hljóp
til kýrinnar þegar í stað og át hana.
Að þvl búnu sneri hann sér að konunni í sama augna-
miði.
En konan beið ekki boðanna heldur hljóp sem fætur
toguðu á eftir ókunna manninum og litlu stúlkunni. Þau
voru komin niður að ströndinni.
Konan kallaði til mannsins:
„Hjálpaðu mér. Ég er í mikilli hættu. Ég sé eftir því,
sem ég gerði. Hjálpaðu mér til þess að koma úlfinum
burt áður en hann étur börnin og geitina. Geitin er mér
dýrmæt, og án barnanna væri mér lífið einskis virði. Þó
að erfitt sé að vinna fyrir þeim, tel ég það ekki eftir, en
hef mikla ánægju af því. Þú verður að hjálpa mér. Ég er
viss um að þú getur það. Ég grátbæni þig um hjálp."
Maðurinn horfði alvörugefinn á konuna. Svo sagði hann:
„Þessi úlfur. er þín eigin ágirnd. En vegna þess að þú
iðrast skal ég hjálpa þér og koma þessum voðalega úlfi
burt.
Vertu róleg. Farðu heim. Allt mun fara vel og þú ekki
verða fyrir neinum óþægindum. Úlfinn mun ég kveða nið-
ur. Það er gott að hafa hjálpað öðrum, þess nýtur þú hjá
mér.“
Að svo mæltu hélt maðurinn leiðar sinnar. Hann gekk
hægt og leit ekki við.
Þegar konan kom heim, var úlfurinn horfinn, og varð
hún mjög glöð. En fallega kýrin var heima við kotið, sú
hin sama, er fyrr hafði verið töfruð fram, eða önnur alveg
eins. Þessa kú átti konan. Það var góð eign. Má geta þess,
að kýr eru sums staðar, t. d. í Indlandi, álitin heilög dýr,
og eru ekki drepnar. Meira að segja ekki vaktar, þó að
þær sofi á daginn á fjölförnum götum stórborga Indlands.
„Ég má ekki vera ágjörn," sagði konan við sjálfa sig
um leið og hún teymdi kúna inn í lítið útihús, er nú skyldi
notað fyrir fjós. Konan var góð við kúna, enda mjólkaði
hún vel. Börnin og konan döfnuðu ágætlega.