Æskan - 01.10.1970, Qupperneq 43
Eitt
og annað
um
Ijósmyndun
KÆRU LESENDUR
Það hefur orðið að samkomulagi, að
ég skrifi eitt og annað um Ijósmyndir
fyrir Æskuna. Hugmynd mín er sú að ræða
ekki mjög nákvæmlega um tæknilega hlið
Ijósmyndunar, heldur fremur að sýna ykk-
ur eitt og annað skemmtilegt, sem gæti
orðið til að glæða áhuga ykkar á Ijós-
myndun, sem er heillandi grein fyrir unga
og aldna. Sumir Ijósmyndarar eru óum-
deilanlega listamenn, og víða á listasöfn-
um erlendis er að finna verk þeirra. En
í þessari grein þurfa menn að vita mikið
og hafa að baki langa þjálfun til að ná
verulega góðum árangri. Flestir Ijósmynd-
arar eiga góðar og fjölhæfar myndavélar,
en þeir hafa áreiðanlega flestir byrjað með
það, sem við köllum í daglegu tali kassa-
myndavélar, en heita nú „Instamatic". Ykk-
ur liggur ekkert á að eignast flóknar vél-
ar — þær skuluð þið ekki kaupa fyrr en
þið skiljið aðalatriðin í Ijósmyndatækn-
inni.
Þegar þið takið ykkur ,,kassamyndavél“
í hönd, þá þurfið þið ekki að gera annað
en stilla á ,,sól“, ,,skýjað“ eða „þung-
skýjað" og smella síðan af. Framan á vél-
inni er Ijósopið og það stækkið þið og
minnkið eftir birtunni, sem þýðir, að þið
hleypið inn í vélina mismunandi mikilli
birtu. Á mynd 1 sjáið þið framan á Ijós-
opið: fyrst er það lokað, síðan hálfopið
og að lokum aiveg opið. Eftir því sem Ijós-
opið er stærra, þvi meiri birtu hleypir það
inn.
Þegar þið setjið filmu í vélina í fyrsta
skipti, skuluð þið biðja einhvern fullorð-
inn að hjálpa ykkur. Fyrsta boðorðið er
að setja aldrei filmu í vél nema í skugga,
því ef maður er hikandi og heldur ekki
nógu ákveðið utan um filmuna, þá getur
sólarljósið náð að þrengja sér inn í film-
una og eyðileggja hana, a. m. k. á pörtum.
Svo skuluð þið gæta þess að hafa Ijós-
opið hreint og koma aldrei við það með
fingrunum.
En hvað gerist, þegar þið takið mynd,
og hvað hefur gerzt frá því að þið senduð
myndina í framköllun og þar til þið feng-
uð myndir ( hendur?
Þegar þið smelltuð af og hleyptuð
„myndinni" inn í vélina, þá festist hún á
filmunni — það er að segja, filman geym-
ir „myndina" þar til hún er sett i fram-
köllunarvökva. Ef þið tækjuð mynd og
tækjuð siðan filmuna úr til að skoða, hvað
hefur gerzt, þá sæjuð þið enga breytingu
— breytingin verður ekki fyrr en filman
kemst í snertingu við vökva, sem kallað-
ur er framköllunarvökvi. Framköllunar-
vökva er hægt að fá tilbúinn i flöskum, og
er yfirleitt blandaður með vatni eftir sett-
um reglum. Filman er tekin úr í svarta
myrkri, og það þarf talsverða æfingu til að
koma henni í sérstaka spólu, sem síðan
er sett í framköllunardós og lokið skrúfað
á. Að því loknu er óhætt að kveikja Ijós
og hella framkallaranum í (Til eru sér-
stakar framköllunardósir, sem taka film-
una inn í sig án þess að slökkva þurfi
Ijósið).
Framköllunarvökvinn byrjar nú að vinna
á filmuhimnunni og leysir upp aukaefni,
sem blandast framköllunarvökvanum. Þeg-
ar búið er að framkalla filmurnar ákveð-
inn tíma (5—10 mínútur eftir gerð fram-
kallarans), þá er framkallaranum hellt burt
og filman skoluð í vatni dálitla stund. Nú
þarf annað efni að koma til sögunnar, svo
að allt sé fullkomið, það kallast fikser.
Filman liggur í fiksernum í 10—15 mínút-
ur að jafnaði, og síðan er filman skoluð
alllengi í vatni til að öll aukaefni hverfi.
Þá loksins er framköllun lokið, og nú má
hengja filmuna upp til þerris. í næsta þætti
skulum við ræða um það, hvernig við för-
um að því að fá mynd af filmunni, og í
þar næstu þáttum segi ég ykkur frá því,
hvernig myndirnar eru framleiddar í heima-
húsum og í fjöldaframleiðslu hjá ijós-
myndaumboðunum. Enn síðar ræðum við
um góðar myndir og slæmar, og kannski
get ég einhvern tima sagt ykkur frá Ijós-
myndurum blaðanna og þeirra skemmti-
lega starfi. Það er af nógu að taka, og ég
vona, að þið hafið gaman af þessum þætti,
þegar tímar líða fram. Ef þið viljið skrifa
og spyrja um eitthvað, þá merkið bréfin
„Ljósmyndaþáttur Æskunnar, pósthólf 14“.
S. J.
*'■ ^ 'i..........
Jólablaðið
Þeir, sem eiga eftir að greiða
áskriftargjald ÆSKUNNAR fyr-
ir yfirstandandi ár, eru vinsam-
lega beðnir að minnast þess,
að senda ber greiðslu strax!
Jólablaðið er næsta blað, og
verður það mjög fjölbreytt að
efni.
515