Æskan - 01.10.1970, Blaðsíða 70
.JSBSS?
FRUMDYOOJABÆKURNAR 2 X KjlWf'S-í
ELMER HORN
Á LEIÐ YFIR SLÉTTUNA
HÆTTUR OG FLOTTI I
I
Flótti og nýjar
hættur
Frumbyggjabækurnar hafa náð mikl-
um vinsældum hér á landi. Þrlðja bók-
in I þessum vinsæla flokki er nú kom-
in og heitir hún: Flótti og nýjar hættur.
f lausasölu kr. 175,40. Til áskrifenda
ÆSKUNNAR kostar bókin aðeins kr.
132,00. Fyrsta bókin í þessum flokki var
Á leið yfir úthafið. f lausasölu kr.
156,85. Til áskrifenda ÆSKUNNAFt
kostar bókin aðeins kr. 110,00. Önnur
bókln I þessum flokki var: Á leið yfir
sléttuna. í lausasölu kr. 198,90. Til
áskrifenda ÆSKUNNAR kostar bókin
aðeins kr. 140,00. Höfundur er Elmer
Horn, en þýðingu hefur annast Eiríkur
Sigurðsson, fyrrv. skólastjóri.
Flótti og nýjar hættur. i þessari sögu
er sagt frá margvislegum erflðlelkum,
sem norsku landnemarnir verða fyrir.
Skógareldur eyðileggur heimlli þeirra
og fólklð bjargast vlð illan leik. Þeir
Knútur og Axel eru teknir til fanga af
Indlánum, og hljóta slæma meðferð.
En „Litla bylgja", dóttir höfðingjans,
reynist þeim vel.
Næsta bók af þessum skemmtllegu
drengjasögum heitir: Indíánaeyjan.
Með septemberblaði ÆSKUNNAR var öllum áskrifendum
send „Bókaskrá ÆSKUNNAR 1970“. í þessari bókaskrá geta
lesendurnir valið um 120 bókartitla og keypt allar þær bækur,
sem þar bjóðast með sérstökum kostakjörum. Ef einhverjir
kaupendur hafa ekki fengið „Bókaskrá ÆSKUNNAR 1970“,
ættu þeir að láta afgreiðslu blaðsins vita strax, svo að hægt 1
verði að senda hana. — Á 5 blaðsíðum, sem eru teknar úr
skránni og birtar hérna, er aðeins að finna þær bækur, sem
ÆSKAN gefur út á þessu ári.
Hverjum kaupanda er heimilt að kaupa eins margar bækur
og hann óskar, og strax og pöntun hefur borizt verður hún
afgreidd og send í póstkröfu. Munið, að hér er í boði lægsta
verð, sem nú er hægt að bjóða, en það er um 30% lægra
en í bókaverzlunum í dag.
Afgreiðsla allra bóka ÆSKUNNAR er í Lækjargötu 10,
sími 17336.
- Æ S K A N GEFUR EKKI ÚT ANNAÐ EN URVALSBÆKUR -
542