Æskan - 01.01.1971, Side 2
millllllllllllllllllllllllll.nl IIIUIIIIIIIIIIIIIIllllllllIIIIIHiIlllIIIIIIIIllllllllMIIHII|llllllllllHlllllllllillllllllllllllllllllllllHIIII[IIHIIIIlllllllllllllllllllWIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIilllllllIIII[|IMIIIIIIIIII,!IIHIII!lllllllll[li;li1»lllll,
Ritstjóri: GRÍMUR ENGILBERTS, ritstjórn: Lækjargötu 10A, simi 17336, heimasíml 12042. Framkvæmdastjóri: KRISTJÁN
GUÐMUNDSSON, skrifstofa: Lækjargötu 10A, heimasimi 23230. Útbreiðslustjóri: Finnbogi Júlíusson, skrifstofa: Lækjar- Janúar
götu 10A, simi 17336. Árgangur kr. 380,00 innanlands. Gjalddagi: 1. apríl. í lausasölu kr. 50,00 eintakið. — Utaná-
skrift: ÆSKAN, pósthólf 14, Reykjavik. Útgefandi Stórstúka íslands. Prentun: Prentsmiðjan ODDI hf. 1971
72. árg.
1. tbl.
Skoti nokkur var svo óhepp-
inn, að hann missti joðáburð
á fingurinn á sér. Svo að
áburðurinn færi ekki til ónýt-
is, skar hann sig í fingurinn.
Tveir Skotar voru að tala
saman, þegar annar sagði:
— Má ekki bjóða þér hress-
ingu?
—- Jú, þakka þér fyrir, svar-
aði hinn og lifnaði yfir hon-
um.
Sá fyrri gekk þá út að glugg-
anum og opnaði hann.
Skotinn við son sinn: —
Hvað er nú að þér, drengur
minn? Þú ert alltaf að nöldra.
Sonurinn: — Er það nokkur
furða? Ég fæ aldrei að fara
neitt, ekki í bíó eða neitt.
Faðirinn: — Hvað er að
þér? Geturðu ekki notið ailra
þeirra skemmtana, sem hægt
er að hugsa sér? í kvöld, þeg-
ar þú ert háttaður, skaltu bara
stinga öðrum fætinum undan
sænginni, þangað til þér er
orðið dauðkalt, og finndu svo,
hvað það er notalegt að kippa
fætinum undir sængina aftur.
Kvikmyndahúseigandi í Skot-
landi vildi vera höfðinglegur
við bíógesti sína. Hann lét
mála skilti yfir dyrnar á kvik-
myndahúsinu, og þar stóð letr-
að stórum stöfum:
„Ailir, sem komnir eru yfir
áttrætt, fá ókeypis aðgang —
ef þeir eru í fylgd með for-
eldrum sínum.“
Skoti nokkur var á skemmti-
göngu ásamt syni sínum og
sagði:
— Hvaða skó hefurðu á fót-
unum núna, drengur minn?
— Nýju spariskóna mína,
svaraði sonurinn.
— Taktu þá iengri skref,
væni minn, sagði faðirinn.
KJörorðið er: ÆSKAM FTKIR KKKI ,\4
Allir þeir kaupendur ÆSKUNNAR, sem eru
10 ára og yngri og eiga afmæli í febrúar 1971,
geta sent ÆSKUNNI nöfn sín ásamt fæðingar-
degi, fæðingarári og heimilisfangi fyrir 20. febr.
næstkomandi.
Úr þeim nöfnum, sem berast, verða svo dregin
10 nöfn, sem hljóta bækur í afmælisgjöf' frá
ÆSKUNNI.
Nú verður það spurningin, hve margir kaup-
endur ÆSKUNNAR eiga afmæli í febrúar, og
hverjir af þeim verða þeir heppnu að hljóta af-
mælisgjafabækurnar í þetta skiptið.
í næsta blaði kemur svo röðin að þeim börn-
um, sem eiga afmæli í marz.
Skotasögur