Æskan - 01.01.1971, Blaðsíða 48
dili Oiláus og Síóri OCláus
i ‘pióðlákhúsinu
ASalhlutverkin, Kláusarnir, eru leikin af þeim Þórhalli SigurSs-
syni og Bessa Bjarnasyni.
Barnaleikrit Þjóðleikhússins verður að þessu sinni leik-
ritið Litli Kláus og Stóri Kláus eftir Lísu Teztnes, en leik-
urinn er byggður á hinu þekkta ævintýri H. C. Andersens.
Leikstjóri er Klemenz Jónsson, en leikmyndir gerir Gunn-
ar Bjarnason. Aðalhlutverkin, Kláusarnir, eru leikin af leik-
urunum Bessa Bjarnasyni og Þórhalli Sigurðssyni. Þeir,
sem fara með önnur hlutverk í leiknum, eru: Árni Tryggva-
son, Bryndls Pétursdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Jón
Júlíusson, Björg Árnadóttir, Gísli Alfreðsson, Erlingur Gísla-
son og ýmsir fleiri. Alls munu koma fram í þessu leikriti
um 30 leikarar og aukaleikarar. Carl Billich stjórnar tón-
listarflutningi í leiknum. ,
Flest börn munu kannast við ævintýri H. C. Andersens
um Litla Kláus og Stóra Kláus, og hvernig Litfa Kláusi
tekst alltaf að leika á nafna sinn, en eins og í öllum góð-
um og fögrum ævintýrum, þá fer allt vel að lokum, og
Stóri Kláus fellur á sjálfs sín bragði.
Ekki er að efa, að hinir ungu leikhúsgestir kunni vel að
meta þetta vinsæla ævintýri meistarans frá Óðinsvéum,
H. C. Andersens.
lestur og ýmis gamanmál. En að lokum var
stiginn dans til kl. 2 eftir miðnætti.
Ég þakka Akureyrarskátum fyrir þátt
þeirra og sendi þeim kveðju með tveimur
vel kunnum skátasöngvum eftir vel þekkta
skátaforingja frá Akureyri. Þessir tveir
söngvar lýsa svo vel tveimur meginþátt-
unum ,í starfi skáta:
Hve létt og blíð er lundin
og Ijúf sú gleðistundin.
:/:Tra, la, la la la la :/:
Þegar góðir vinir ganga
um grýtta vegi og langa
Tra la la la ...
Þá óðum styttist leiðin
og loksins þrýtur heiðin
er komið er að kveldi
þeir hvíla sig hjá eldi.
Þá syngja allir saman
þú sérð það verður gaman
Tra la la la . ..
Látum hljóma hátt og hvellt
vort glaða göngulag
óma yfir byggð og bæ
og blessa liðinn dag.
Tra la la la la la la la la la la.
Sigr. Skafta.
Orðtak allra skáta:
Vertu viðbúinn
sé greypt í huga þinn.
og greypt í huga minn.
Það varðar okkar leið
á lífsins gönguför,
til lokadags, er þrýtur fjör.
Tryggvi Þorsteinsson.
Mínar beztu óskir til allra ís-
lenzkra skáta um gott og heillaríkt
skátastarf á árinu .1971.
‘ H. T.
Að störfum
við landnámsbæinn.
Hlið Valkyrja
frá Akureyri
á Landsmótinu 1970.
48