Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1971, Blaðsíða 24

Æskan - 01.01.1971, Blaðsíða 24
Þau yfirgáfu dýragarðinn og óku sem leið lá að vaxmyndasafni Madame Tussaud’s. Þar var fjölmenni fyrir og mikið um að vera. Allir, sem koma til London vilja sjá þetta heimsfræga safn. Þó að þetta væri aðeins nokkrum dögum eftir að nýja ríkisstjórnin undir forsæti Mr Edwards Heaths tók til starfa, voru vaxmyndir af Mr. Heath og samráðherrum hans fjórum komnar upp, það voru Hogg, Moulding, Douglas Home, McLoyd. Á miðju gólfi var konungsfjölskyldan, þarna var Snowdon lávarður og Margrét prinsessa, Alexandra prinsessa og fjöldinn allur af fyrirfólki ásamt Parlamentið (þinghúsið) séð úr lofti. ingiríði og Friðrik konungi í Danmörku. Beint á móti þessu íyrir- fólki er Elísabet drottning ásamt manni sínum Filipþusi hertoga og nokkrir „beefeaters” þeim til trausts og halds. Við hlið drottn- ingar er kóróna, sem virðist vera nákvæm eftirlíking þeirrar, sem geymd er i hvelfingunni í Tower. Þarna er Charles prins og Elisabet drottningarmóðir, en síðan taka við frægir pólitíkusar svo sem Chamberlain, Gladstone, McDonald, Hugh Gaitskell að ó- gleymdum Harold MacMillan. Þarna situr Yosita frá Japan með stóran vindil og fráfarandi forsætisráðherra Harold Wilson situr hér með Barböru Castle á aðra hönd og Michael Stuart á hina ásamt Roy Jenkins og Callagan. Við næsta borð situr hinn fallni þingmaður George Brown ásamt fleiri mönnum og síðan taka við aðrir, svo sem Sir Francis Chichester, sem sigldi einn síns liðs umhverfis jörðina, og næstur honum Lord Baden Powell stofn- andi skátahreyfingarinnar og William Boots hershöfðingi, stofn- andi Hjálpræðishersins. Síðan taka við trúarleiðtogar: Kalvín, Lúther og Páll páfi VI ásamt mörgum prelátum. Gegnt úti á miðju gólfi eru karlar, sem ekki láta sig trúarbrögð miklu skipta, en þar situr fremstur Ho Chi Minh, en fyrir aftan hann standa Fidel Castro, Leonid Bresnéf og Maó Tse Tung. Maó er unglegur og hressilegur í sínum bláa vinnugalla, en Bresnéf er í gráum jakka- fötum. Og hér er Martin Luther King, og nú taka við fleiri Banda- ríkjamenn: Hoover, Abraham Lincoln, Johnson og William Penn og gamli Eisenhower. Þarna er líka Theodor gamli Roosevelt, og hér standa þeir saman Nixon núverandi Bandaríkjaforseti og John F. Kennedy. Og hár situr Franklin D. Roosevelt. Þá koma geimfararnir John Glenn og Júri Gagarín. Hér kemur einn, sem við könnumst við frá Reykjavík, David Ben Gurion. Þá taka við franskir heiðursmenn með de Gaulle í broddi fylkingar, síðan eru Adenauer og Hussein Jórdaníukonungur. Hér er Nasser, og Krúséf stendur þarna að baki hans. Þá koma Titó og heldur á dagblaði, Sjú En Læ, Makaríos erkibiskup og Jomo Kenyatta. Nehru og Indira Gandhi eru í góðum félagsskap. Úti [ horni, næstum hálfur bak við skerm, stendur lan Smith frá Rhódesíu. Ekki má skilja svo við þennan mikla sal, að ekki sé getið manns sem situr hér á miðju gólfi og málar mynd. Þetta er Sir Winston Churchill, sem situr hér í sínum röndóttu jakkafötum með stóran hvitan hatt á höfði og málar hitabeltislandslag með pálmum og sólgullnum sæ. Hér fyrir framan eru frægir útvarps- og sjónvarps- menn, og situr David Frost þar í miðju. Hér stendur einnig vörður, sem segir ekki neitt, enda er hann úr vaxi. Á næstu hæð fyrir ofan eru sýndir atburðir úr sögu Englands, og sumir Ijótir. Flest eru þetta söguleg morð og aftökur, og hér er sýnt, þegar Guy Fawkes var tekinn fastur, en við hann er Guy Fawkes kvöldið kennt, sem er nokkurs konar gamlárskvöld á Bretlandseyjum með flugeldasýningum og fleiru. Það var ,5. nóvember 1605, að Guy Fawkes og félagar hans reyndu að sprengja Parlamentið (þinghúsið) í loft upp til þess að mótmæla Jakob I. Hér sést Guy Fawkes handtekinn í kjallaranum undir þinghúsinu rétt áður en hann gat kveikt í púðrinu, sem átti að 24
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.