Æskan - 01.01.1971, Blaðsíða 27
»Þessi dýr og fuglar lifa aðeins í SuSur-Ameriku,“ sagSi málarinn.
,,Það er nóg að gera,“ hrópaði Villi ánægður. „Það
eru ekki nema nokkrar mínútur síðan ég var að ferðast
um á Suðurpólnum, og nú er ég kominn upp í flugvél,
sem er á leið til, ja, ég veit ekki hvert.“
,,Er nokkur, sem veit, hvert flugvélin er að fara?“
spurði Villi. En Hannibal, sem einnig var hissa á þess-
um hraða, hallaði sér út af til þess að láta sig dreyma
um mörgæsavinina sína. „Segið mér það, ef ein-
hver veit.“
,,Við erum á leið til Argentínu, vinur minn,“ sagði
einhver með djúpri röddu. „Það er stórt land í Suður-
Ameríku, og þar muntu sjá mikla skóga og víðáttu-
miklar sléttur svo langt sem augað eygir. Þar eru
einnig sandeyðimerkur, þar sem einstaka gróðurblett-
'r eru á stangli. En þar eru einnig hin undurfögru
Andesfjöll. Þetta er landið, þar sem ég er fæddur,
°9 þér mun ábyggilega geðjast að því.“
Villi sneri sér við til þess að sjá, hver talaði og sá,
að það var málarinn, sem teiknaði og málaði brosandi
aí niiklu kappi. „Ég heiti Ricardo Fernandez," sagði
hann. „Fólkið kallar mig Ricky. Ég er að teikna
handa þér myndir af sérkennilegum dýrum og fugl-
um, senn aðeins eru til í Suður-Ameríku.“
Villi fylgdist með, hvernig listamaðurinn teiknaði,
meðan flugvélin, Douglas Skymaster, þaut yfir ísauðn-
ir hafsins umhverfis suðurskautið, yfir snævi þakin
fjöll inn í milda veðráttu Argentínu. Og hann hlustaði
gegnum skrúfuþyt vélarinnar á frásagnir Rickys um
dýrin og fuglana, sem hann var að teikna.
„Ég var einu sinni úti í skógi, þegar ég heyrði allt
í einu geysilega skruðninga. Þrumur, hugsaði ég, en
ekki aldeilis, það var öskur úr stórum górilluapa. Ann-
að skipti ætlaði ég að reyna að elta uppi armadillo,
en þú hefðir átt að sjá, hvað hann gat hlaupið hratt.
En þá sá ég mauraætu, sem er tannlaust dýr. Og
skammt þar frá fann ég tamandua, sem hékk á löpp-
unum niður úr trjágrein.“
Síðan bætti Ricky við með söknuði í röddinni: „Það
er eitt dýr, sem mig hefur langað til þess að teikna
en ekki getað, vegna þess að ég hef aldrei séð það.
Þess vegna er ég nú á leið til La Pampa til þess að
reyna að finna það.“
„Hvaða dýr er það?“ spurði Villi.
„Það er guanaco,“ sagði Ricky og yppti öxlum.
„En ég býst við, að ég verði að leita lengi. Þetta er
lítið kameldýr með engan hnúð á hryggnum, og það
27