Æskan - 01.01.1971, Blaðsíða 62
HEIMIUSBÓK ÆSKUNNAR
Strokjárn. Flest öll strokjárn, sem nú eru á markaðinum, eru með
hitastilli. Þau hætta því að hita sig sjálf með vissu millibili, þótt
þau séu ónotuð klukkustundum saman. Þessu megið þið samt
ekki treysta. Takið járnið alltaf úr sambandi, um leið og þið
eruð búin að nota það. Gætið þess, að snúran lafi ekki niður,
svo að börn nái til hennar. Þótt undirlagið á brettinu sé úr eld-
traustu efni, getur stoppið brunnið, sé járnið skilið eftir í sam-
bandi, og valdið miklum reyk. Og allir vita framhaldið!
Rafmagnsofnar. Þótt rafmagnsofnar, sem meðfylgjandi mynd sýn-
ir, séu ekki mikið notaðir, er þó dálítið um þá. Á þessum ofnum
eru það rauðglóandi vírar, sem gefa hitann. Það er freistandi að
þurrka við þá þlautar flíkur á regndegi, en það getur verið hættu-
legt. Ef flíkin snertir ofninn, kviknar [ henni.
Vindlingaaska. Það er sjálfsögð regla að losa öskubakka að lok-
inni gestakomu. En það má ekki láta þurra öskuna ( pappakassa,
eins og sést á myndinni, því að það getur leynzt neisti í einum
stubþi, án þess að við tökum eftir því. Gegnbleytið öskuna í
málm- eða gleriláti. Munið, að einn neisti getur kveikt í heilu
húsi.
Lítil gastæki. Þau eru þægileg og gott að sjóða á þeim í ferða-
lögum. En þau vilja velta um koll, ef grindin er ekki höfð undir
þeim. Fylgizt vel með þessum tækjum, og sé þröngt í tjaldinu,
er öruggara að elda úti en að eiga á hættu, að tækið velti um.
/■
V.
HBM\USBÖK ÆSKUNNAR
Heit feiti og síminn. Dyrabjallan og síminn geta hringt á hvaða
tíma sem er. Það er góður siður að líta á eldavélina, áður en
svarað er. Sé feiti [ potti eða á pönnu á heitri plötu, er rétt að láta
lokið yfir og draga ílátið af plötunni.
ATH. Það getur aðeins tekið 10 mínútur frá því að feiti bráðnar,
þangað til kviknar í henni á sterkri plötu. Farið aldrei úr eld-
húsinu frá heitri feiti á plötu.
Sólskin — stækkunargler — kristallskúla. Látið ekki kristallskúlu
eða stækkunargler liggja í glugga, þar sem sólin skín. Geislar
sólarinnar brotna, þegar þeir falla á glerið. Hitinn verður marg-
falt meiri í brennipunktinum og getur valdið íkveikju á glugga-
tjöldunum.
Raftenglar. Raftenglar geta verið hættulegir, þar sem Iftil börn
eru. Ef þau, eins og sýnt er á myndinni, stinga prjónum eða
öðrum málmhlutum í götin, getur það orsakað raflost.
Skiljið aldrei snúruna af hraðsuðukatlinum eftir í sambandi,
þegar ketillinn hefur verið tekinn frá. Börn geta stungið enda-
stykkinu upp í sig með hættulegum afleiðingum.
Gljáfægð gólf. Bónuð gólf geta verið falleg, en þau geta líka
verið hættuleg. Bónið aldrei undir mottum. Bónið eldhúsgólfið
með varúð. Ef fita eða annað, sem sést illa á gólfinu, hellist á
það, án þess að við tökum eftir því, getur gólfið orðið glerhált.
Skammelið, sem sést hér á myndinni, er ekki heppilegt til þess-
ara nota. Betra er að hafa stöðuga tröppu, helzt með gúmtöppum
að neðan, sérstaklega ef gólfið er bónað.
r\i
vo