Æskan - 01.01.1971, Blaðsíða 63
POP-HEIMURINN
—
Bob Dylan.
Greenwich Village. Á fyrstu
hljómleikum hans 1961 i Car-
negie Hall voru aðeins 53 á-
heyrendur. Er hann kom fram
á hljómleikum á Newport há-
tíðinni 1963, varð hann í einni
svipan eftirlæti hinnar efa-
gjörnu ungu kynslóðar með
lögum eins og Blowin’ in the
Wind og The Times they are
a-changin, sem bergmáluðu
hugmyndir unga fólksins um
stríð, kynþáttahatur og þjóð-
félagslegt ranglæti. Söngform
hann og rödd hafa breytzt enn
einu sinni eftir að hann hafði
gengið í gegnum rock-timabil-
ið 1965—66. Á meðan Dylan
var að ná sér eftir mikið bif-
hjólaslys (1967) þróaðist nú-
verandi „country“-still hans,
sem heyra má á plötunum
John Wesley Harding og Nash-
ville Skyline.
Utanáskrift:
C/o A. B. Grossman,
75 East 55th Street,
New York, N. Y., USA.
Julie Drisco/I
& The Brian Auger Trinty
tóku saman 1966. LP-platan
þeirra „Open“, sem var tekin
upp 1967, vakti aðcins athygli
hljómlistarmanna. 1968 urðu
þau vinsæl með Dylan laginu
This Wheel’s on Fire. Tveggja
platna albúm þeirra „Street-
noise“ er talið vera hámarkið
í samstarfi þeirra, sem lauk i
ágúst 1969. Julie ,Jools“ Dris-
coll (fædd 8. júní 1947) er
hrifin af gamaldags fötum, á-
berandi hárgreiðslum, sóda-
vatni og hráu grænmeti.
Brian Auger (fæddur 18. júlí
1939 í London) er organleikari
en hefur orðið fyrir miklum
áhrifum af jazzmúsík. Félagar
hans eru bassaleikarinn David
Ambrose (fæddur 11. des. 1946
í London) trommuleikarinn
Clive Thacker (fæddur 13. febr.
1940 í Entfield i Middlesex) og
fjórði maðurinn er nú gitar-
leikarinn Gary Boyle.
Utanáskrift:
C/o Paragon Ltd.,
17—19 Stratford Place,
London W. 1., England.
Julie Driscoll.
Os
V.
r
Donovan.
Donovan
Donovan Phillip Leitch fædd-
ist nokkrum öldum of seint —
10. mai 1946 i Glasgow — i
stað þess að fæðast einhvern
tíma á miðöldum i kastala.
Hann er farandsöngvari og
skáld — minnir á „trúbadora"
miðalda — rómantískur ljóða-
söngvari á órómantiskum tím-
um. 16 ára gamall ferðaðist
hann fótgangandi um Corn-
wall, kom 1964 til Lundúna,
var tíður gestur i hinum vin-
sælu sjónvarpsþáttum Ready,
steady, go, og náði sinni fyrstu
metsöluplötu með laginu Catch
the Wind. Hann afsannaði
fljótt það álit sumra, að hann
væri aðeins eftirlíking á Dylan
er út komu lögin Sunsliine Su-
perman, Mellow Yellow, There
is a Mountain, Jennifer Junip-
er, Hurdy Gurdy Man, Atlantis
og Goo Goo Barabajagal. Hann
yfirgefur sjaldan eyjuna Skye,
sem liggur um 90 kílómetra
undan vesturströnd Skotlands,
en þar býr hann i húsvagni
ásamt stúlkunni sinni Enid,
syni sinum Dono og nokkrum
vinum.
Utanáskrift:
C/o Vic Lewis,
3 Hill Street,
London W. 1.,
England.
The Doors
voru ein fyrsta „neðanjarð-
ar“-hljómsveitin (stofnuð árið
1967). Meðan mjúk og hljóm-
þýð músík blómabarnanna var
rikjandi í Kaliforníu fóru The
Doors út í popmúsík. Tímarit-
ið Newsweek segir hljóm þeirra
„harðan og kaldan eins og
stál“. Lagatextar þeirra ein-
kennast mjög af „sexi“ eða
óhugnaði. Söngvari er Jim
Morrison (fæddur 8. 12. 1943
i Melbourne i Florida), orgel-
leikari Ray Manzarek (f. 2.
desember 1942 i Chicago), git-
arleikari Robbie Krieger (f. 1.
ágúst 1946 i Los Angeles) og
trommuleikari John Densmore
(f. 1. desember 1944 í Santa
Monica i Kaliforniu). Þeir
hafa fyrst og fremst gert frá-
bærar LP-pIötur: The Doors,
Strange Days, Waiting for the
Sun, The Soft Parade.