Æskan - 01.01.1971, Blaðsíða 56
Gleðilegt nýár og þökk fyrir árið, sem
var að líða. Flestum verður sennilega ár-
ið 1970 minnisstætt sem ár slysa og nátt-
úruhamfara. En það á einnig sínar björtu
hliðar. Það verður t. d. skráð sem farsælt
ár í íslenzkri íþróttasögu. Glæsileg íþrótta-
hátíð Isf sannaði getu og áhuga æsku
landsins fyrir (þróttum. Þátttakendur í
þessari íþróttahátíð voru næstum því eins
margir og á Ólympíuleikunum í Róm fyrir
10 árum.
íslenzkir íþróttamenn stóðu sig vel I
keppni við aðrar þjóðir. Þeir urðu Norður-
landameistarar í einni grein, sigruðu ýms-
ar þjóðir I landskeppni, í handknattleik,
körfuknattleik, knattspyrnu, sundi og á
skíðum. Frjálsíþróttamenn stóðu sig mjög
vel í keppni á Norðurlöndum, og sett voru
83 íslandsmet í þeirri grein. ísland á
einnig skákmenn og bridgespilara á heims-
mælikvarða.
Mörg verkefni bíða íslenzka íþróttafólks-
ins á þessu ári, og við skulum vona, að
það standi sig ennþá betur.
Sjálfsagt fylgjast mörg ykkar vel með
íþróttum. Ég læt þessum þætti fylgja 10
spurningar, sem þið ættuð að geta ráðið
vel við.
Þið sendið svörin fyrir 20. febrúar
merkt Íþróttasíða Æskunnar, pósthólf 14,
Reykjavik.
Þrenn bókaverðlaun verða veitt fyrir
réttar lausnir.
Þá fáið þið einnig tækifæri til að kjósa
ÍÞRÓTTAMANN ÁRSINS 1970.
Sendið íþróttasíðunni nafn þess íþrótta-
manns eða konu, sem þið álítið að hafi
staðið sig bezt á árinu eða tekið mestum
framförum.
íþróttasamband íslands ætlar á þessu
ári að hefja mkila herferð fyrir almennri
líkamsrækt og útivist. Karlinn, sem þið
sjáið hér á síðunni, verður tákn þessarar
starfsemi, og á hann að minna ykkur á
hollustu þess að stunda íþróttir og njóta
útivistar.
Þið fáið síðar að heyra meira um þessa
nýju starfsemi ÍSl.
Ungt afreksfólk
Badminton er tiltölulega ung íþrótta-
grein hér á landi. Mun hafa flutzt til
landsins í kringum 1939. íslandsmót fór
fyrst fram árið 1949. I byrjun voru iðk-
endur fremur fáir og stóð það í nokkur
ár, en á seinni árum hefur íþróttin breiðzt
mjög út, bæði í Reykjavík og úti á landi,
og stór hópur unglinga leggur nú stund á
þessa skemmtilegu íþrótt.
Af keppendum utan af landi, sem mætt
hafa til leiks á mótum, hafa hópar frá
Siglufirði vakið athygli. Á þetta sérstak-
lega við um keppni í unglingaflokki, þar
sem þeir hafa unnið meiri hluta verð-
launa.
Einn efnilegasti yngri leikmanna þeirra,
og jafnframt sá efnilegasti á landinu, er
sá, sem við birtum hér mynd af, Þórður
Björnsson. Hann er aðeina 12 ára, en
það er einmitt þýðingarmikið atriði í þess-
ari íþróttagrein að byrja dngur æfingar.
1. í hvaða íþróttagrein urðu íslenzkir
unglingar Norðurlandameistarar 1970?
2. Hver urðu úrslit landsleiks Islend-
inga og Norðmanna i knattspyrnu s.l.
sumar?
3. Hvar fór Skíðamót Islands fram 1970?
4. Islenzkur frjálsíþróttamaður vann það
frábæra afrek á árinu að kasta kringlu
60.06 m. Hvað heitir hann?
5. Hvaða þjóð sigruðu íslendingar í
sundi á Íþróttahátíð ÍSl 1970?
6. Islendingar léku 2 landsleiki við Skota
í körfuknattleik á íþróttahátíðinni.
Hverjir sigruðu?
7. Tvö félög með sama nafni leika í 2.
deild íslandsmótsins ( knattspyrnu
næsta sumar. Hvað heita þau?
8. Ung stúlka úr Ármanni, sem var þátt-
takandi í fyrstu Þriþraut FRl og Æsk-
unnar, setti íslandsmet i hástökki á
árinu, stökk 1.56 m. Hvað heitir þessi
efnilega stúlka?
9. Islendingar tóku þátt I heimsmeist-
arakeppni í handknattleik í byrjun
ársins. Hvar urðu þeir í röðinni?
56