Æskan

Volume

Æskan - 01.01.1971, Page 48

Æskan - 01.01.1971, Page 48
dili Oiláus og Síóri OCláus i ‘pióðlákhúsinu ASalhlutverkin, Kláusarnir, eru leikin af þeim Þórhalli SigurSs- syni og Bessa Bjarnasyni. Barnaleikrit Þjóðleikhússins verður að þessu sinni leik- ritið Litli Kláus og Stóri Kláus eftir Lísu Teztnes, en leik- urinn er byggður á hinu þekkta ævintýri H. C. Andersens. Leikstjóri er Klemenz Jónsson, en leikmyndir gerir Gunn- ar Bjarnason. Aðalhlutverkin, Kláusarnir, eru leikin af leik- urunum Bessa Bjarnasyni og Þórhalli Sigurðssyni. Þeir, sem fara með önnur hlutverk í leiknum, eru: Árni Tryggva- son, Bryndls Pétursdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Jón Júlíusson, Björg Árnadóttir, Gísli Alfreðsson, Erlingur Gísla- son og ýmsir fleiri. Alls munu koma fram í þessu leikriti um 30 leikarar og aukaleikarar. Carl Billich stjórnar tón- listarflutningi í leiknum. , Flest börn munu kannast við ævintýri H. C. Andersens um Litla Kláus og Stóra Kláus, og hvernig Litfa Kláusi tekst alltaf að leika á nafna sinn, en eins og í öllum góð- um og fögrum ævintýrum, þá fer allt vel að lokum, og Stóri Kláus fellur á sjálfs sín bragði. Ekki er að efa, að hinir ungu leikhúsgestir kunni vel að meta þetta vinsæla ævintýri meistarans frá Óðinsvéum, H. C. Andersens. lestur og ýmis gamanmál. En að lokum var stiginn dans til kl. 2 eftir miðnætti. Ég þakka Akureyrarskátum fyrir þátt þeirra og sendi þeim kveðju með tveimur vel kunnum skátasöngvum eftir vel þekkta skátaforingja frá Akureyri. Þessir tveir söngvar lýsa svo vel tveimur meginþátt- unum ,í starfi skáta: Hve létt og blíð er lundin og Ijúf sú gleðistundin. :/:Tra, la, la la la la :/: Þegar góðir vinir ganga um grýtta vegi og langa Tra la la la ... Þá óðum styttist leiðin og loksins þrýtur heiðin er komið er að kveldi þeir hvíla sig hjá eldi. Þá syngja allir saman þú sérð það verður gaman Tra la la la . .. Látum hljóma hátt og hvellt vort glaða göngulag óma yfir byggð og bæ og blessa liðinn dag. Tra la la la la la la la la la la. Sigr. Skafta. Orðtak allra skáta: Vertu viðbúinn sé greypt í huga þinn. og greypt í huga minn. Það varðar okkar leið á lífsins gönguför, til lokadags, er þrýtur fjör. Tryggvi Þorsteinsson. Mínar beztu óskir til allra ís- lenzkra skáta um gott og heillaríkt skátastarf á árinu .1971. ‘ H. T. Að störfum við landnámsbæinn. Hlið Valkyrja frá Akureyri á Landsmótinu 1970. 48

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.