Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.01.1971, Qupperneq 21

Æskan - 01.01.1971, Qupperneq 21
Aramútahugleiðing Árið 1971 er að heilsa. Megi það færa okkur hamingju og blessun. Mér finnst svo stutt síðan ég settist niður til að skrifa áramóta- hugleiðingu. Ekki er þó um að viliast, síðan er liðið heilt ár. Jæja, hvað er ykkur svo minnisstæðast frá árinu, sem nýlega kvaddi? Er það eitthvað, sem ykkur þótti skemmtilegt eða leiðinlegt? Svörin eru eflaust margvísleg . . . Kannski hafið þið ekkert hugsað um það. Kannski er svo litill tími — og lítið næði — til að hugsa. En ef þið fáið tækifæri til þess, þá ættuð þið ekki að sleppa þeim tækifærum. Það er nefni- lega talsvert gaman að hugsa sjálfur! Ég sagði í fyrra, að hurð, sem stæði á 1970, væri að byrja að Ijúkast upp. Nú hefur þeim dyrum verið lokað með innsigli fyrir fullt og alit. En ef við gætum þetur að, er þar gluggi með tólf rúðum; ein rúða fyrir hvern mánuð. Og ef við einbeitum okkur, getum við séð þar ýmislegt, sem er þess virði, að því sé veitt athygli. Sumt þykir okkur leiðinlegt að sjá. Og það, sem við fáum sjálf þar um ráðið, ætlum við ekki að láta endurtaka sig. Þá getum við um næstu áramót sagt: — Já, þetta er allt betra hjá mér en í fyrra. — En þegar við lítum yfir 1970 sjáum við líka margt, sem er ágætt og sem við erum ánægð með. Ég er búin að gægjast inn um minn glugga, og núna ætla ég að staðnæmast við þá rúðu, sem merkt er ,,maí“. Þar sé ég fallegan, Ijóshærðan snáða. Hann er með hijóðnema fyrir framan sig. Hann segir mér — og öllum, sem á hann hlusta, því hann er að tala í Útvarpið — að hann heiti Andrés Magnússon og hafi orðið fimm ára fyrir nokkrum dögum. Andrés segist vera í leikskóla og alltaf vera að læra eitthvað; föndra, læra sögur, vísur og lög, og leika í leikritum. Hann segir okkur ofurlitla sögu. Svo spyr ég, hvað hann langi til að verða, þegar hann sé orðinn stór. Það stendur ekki á svari, og Andrés segir: — Það er svo margt. Kannski skipstjóri, iögregiuþjónn eða biskup. — (!) Við hlæjum bæði dátt. Hann segir mér, að hann hafi farið í leik- hús, á sinfóníutónleika og í skrúðgöngur. Hann syngur fyrir okkur vinsælt barnalag. Svo syngur hann „Froskalagið". Það er skemmtilegt lag, sungið á einhvers konar „froskamáli", með mis- munandi takti og áherzlum. — Já, þetta var sniðugt lag! — Andrés segir okkur ekki frá því, að hann hefur sjálfur samið þetta lag (Hann sagði mér það seinna). Þótt Andrés sé ekki nema nýlega 5 ára — (þið vitið, að við Andrés Magnússon „ÆskumaSur ársins 1970“ erum stödd aftur í tímanum, þ. e. maí 1970) — þá hefur hann heimsótt ömmu sína og afa, sem dveljast í Noregi, og hann veit margt um Noreg. Hann veit, að höfuðborgin þar heitir Osló, og hann veit, að þar er konungur, sem heitir Ólafur. Og Andrés þekkir hann Ólaf konung, því hann hefur séð hann í sjónvarpinu hjá henni ömmu sinni, sem á heima rétt hjá kónginum. Og þegar ég spyr hann um ísland, veit hann ekki minna. Hann veit, að hér er forseti, sem heitir Kristján Eldjárn, og að hann á heima á Bessastöðum. (Hins vegar halda margir jafnaldrar hans, að forsetinn heiti Bessi Bjarnason!) Svo tölum við m. a. um eldgosið, og hann veit, að það er í Heklu. Við vorkennum litlu lömbunum, sem lenda í öskufallinu. Nú spyr ég: — Trúirðu á Guð? Andrés svarar því játandi. Ég segi: — Heldurðu, að hann sé til? — Já, segir Andrés. — Og hvað heldurðu, að hann sé? spyr ég þá. Og án þess að hika svarar þessi 5 ára drengur: — Kon- ungur í öllum heiminum. 21
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.