Æskan - 01.01.1971, Page 33
Hér sjást nokkrar stórbygg-
ingar, sem standa á
Manhattan í New York.
Fremst á myndinni er bygg-
ing SameinuSu þjóSanna.
kjötrétti, serri steiktur var yfir eldi. Einn úr hópnum lét reyndar
Þau orð falla, að brunalykt vaeri af steikinni.
Daginn eftir héldum við áfram ferðinni okkar um borgina. Við
höfðum þegar margt séð og orðið reynslunni ríkari. Líklega má
segja, að New York sé brennidepill á þessari jörð. Margar al-
Þjóðastofnanir hafa þar aðalstöðvar, t. d. S.Þ., og í borginni býr
fólk af ólíkustu þjóðernum, sem haldið hefur þjóðareinkennum
sínum og siðum óskertum. Meðal þess eru Kínverjar í Kínahverf-
inu, sem við ætluðum nú að heimsækja. Við skoðuðum þar m. a.
búddamusteri. Og munkur einn kínverskur gaf okkur lítið búdda-
líkneski til minningar um heimsókn okkar þangað. En á götunni
Hér eru þau Karen og GuSmundur og njóta útsýnis yfir New
York frá hæsta turni borgarinnar.
ómaði kínverskur söngur. Söngur á óskiljanlegri tungu. Allt var
þetta framandi, en jafnframt éminning um að til eru þjóðir ólíkar
okkur, sem taka verður tillit til, þó að við skiljum þær ekki.
Aldrei hefur okkur dottið í hug, að við ættum eftir að standa
í heilabúi frelsisstyttunnar og virða fyrir okkur skip frá ýmsum
þjóðlöndum sigla inn um hafnarmynni Néw York borgar.
En allt tekur sinn enda og þessi ferð sem annað, en eftir var
að skoða aðalstöðvar S.Þ., það var hámark ferðarinnar og sá
hluti hennar, sem sízt mun gleymast. Flestir hafa séð myndir af
byggingu S.Þ. og vita, hvernig hún lítur út. Innan veggja hennar
eru ótal fundarsalir, og skoðuðum við marga þeirra. Þar koma
saman menn, íulltrúar þjóða sinna, til að ráða fram úr vanda-
málum mannkynsins. Oft reynist erfitt að komast að samkomu-
lagi, og væri þá þessum mönnum fiollt að fara stutta ferð um
borgina og kynnast af eigin raun lífi fólks af óliku þjóðerni,
stigum og efnum. Það er einkennileg tilfinning að vera á þeim
stað, þar sem framtíð okkar verður ef til vill ráðin.
Ánægjulegri ferð er nú lokið. En hún var ekki aðeins skemmti-
leg heldur einnig fróðleg. Á þremur dögum höfum við kynnzt
fleira en okkur hefur órað fyrir á svo skömmum tima. En mengun
og hávaði New York borgar hefur kennt mér að meta betur
hina friðsælu og kyrrlátu borg okkar, Reykjavík.
Guðmundur Garðar Guðmundsson.
33