Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.01.1971, Qupperneq 37

Æskan - 01.01.1971, Qupperneq 37
Hópurinn kom ekki að kofanum á ströndinni fyrr en degi var tekið að halla. Heimkoman var þeim Clay- ton og Porter mikið gleðiefni, því það fyrsta, sem þeir sáu við komuna, var Jane Porter. Hún rak upp gleðióp Og hljóp á móti þeim. Hún vafði föður .sinn örmum og grét af gleði. Porter barðist við að láta sem minnst bera á geðshræringu sinni, en honum tókst það ekki. Loksins huldi hann höfuðið við barm dóttur sinnar og grét eins °g barn. Jane leiddi hann að kofanum, en Frakkarnir fóru til bátanna á ströndinni. Nokkrir félagar þ'eirra komu þar til móts við þá. Clayton vildi lofa feðginunum að vera einum saman um stund, svo að hann fór niður í fjöru og talaði við hermennina, unz bátur þeirra lagði af stað út að skip- unum. Clayton gekk í hægðum sínum aftur til kofans. Hann var gleðidrukkinn. Konan, sem hann unni, var heil á húfi. Honum lék forvitni á að vita, hvaða krafta- verk hafði orðið henni til bjargar. Þegar hann nálgaðist kofann, kom Jane út. Er hún sá hann, hraðaði hún sér til hans. „Jane!“ kallaði hann, „gæfan hefur sannarlega verið okkur hliðholl. Segið mér, hvernig þér komuzt undan, — hvaða kraftaverk bjargaði yður?“ Hann hafði aldrei áður nefnt hana skírnarnafni hennar. Fyrir tveimur dögum hefði það valdið henni þægilegri feimnikennd að heyra Clayton nefna það — nú skelfdi það hana. „Clayton," sagði hún lágt og rétti honum höndina, „má ég þakka yður fyrir drengilega framkomu yðar við föður minn. Hann er búinn að segja mér, hve vel þér komuð fram við hann. Hvernig getum við endurgoldið allt það að verðleikum?" Clayton tók eftir því, að hún heilsaði honum ekki oins kumpánlega og venjulega, en honum fannst það ekk'ert undarlegt. Hún hafði orðið að þola svo margt. Hann áttaði sig á því, að hér var hvorki staður né stund til þess að játa henni ást sína. „Launin hef ég þegar hlotið," mælti hann. „Mér nægir að sjá ykkur bæði heil og ánægð. Ég-efast um, að ég hefði lengur getað afborið hinn þunga og þögula söknuð hans. Það kenndi mér, að engin ást, ekki einu sinni ast manns á konu sinni, getur verið eins einlæg, 'eins djúp og fórnfús og ást föður til dóttur." Þá bar Jane fram spuminguna, sem hafði brunnið á vörum hennar lengi: „Hvar er skógarmaðurinn, sem fór ykkur til hjálpar? hví kom hann ekki?“ „Ég skil yður ekki,“ mælti Clayton. „Hvern eigið þér við?“ „Þann, sem bjargað hefur okkur öllum — sem bjargaði mér frá górilluapanum.“ „Hvað!“ hrópaði Clayton undrandi. „Var það hann, sem bjargaði yður? Þér hafið 'enn ekki sagt mér neitt frá ævintýri yðar.“ „En hvar er skógarmaðurinn?“ endurtók hún. „Sáuð þið hann ekki? Þegar við heyrðum skotin úr skóginum, lór hann frá mér. Ég veit með vissu, að hann ætlaði að hjálpa ykkur.“ Rödd hennar bar vott um geðshræringu, og Clayton veitti því athygli, þótt Hann grunaði ekki hið rétta. Honum féll þetta þó ekki vel í geð og varð þungt niðri fyrir. Clayton gerði sér ekki grein fyrir því, að á þessari stundu var sáð fyrsta sáðkorni afbrýðisemi og tortryggni í garð apamannsins, sem hann átti þó líf sitt að launa. „Við sáum hann ekki,“ svaraði hann dræmt.-„Hann kom ekki til okkar.“ Svo bætti hann við eftir augnabliks- þögn: „Ef til vill slóst hann í för með sínum eigin flokki — mönnunum, sem réðust á okkur.“ Hann vissi ekki sjálfur, hvers vegna hann sagði þetta, því að hann trúði því ekki sjálfur, en ástin er undarl'egt afl. „Nei,“ sagði hún áköf — alltof áköf fannst honum. „Það er óhugsandi. Þeir voru svertingjar — hann er hvítur maður — og göfugmenni." Clayton varð vandræðalegur. „Hann er ókunnur og hálfvillt skógardýr, ungfrú Porter. Vopn hans eru sömu tegundar og þau, sem villimennirnir nota. Líklega er hann einnig mannæta. Framhald á biaðsíðu 40. 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.