Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1971, Síða 38

Æskan - 01.01.1971, Síða 38
 Myndin sýnir Inn í hýbýli almennrar Mínóafjölskyldu. Þar má sjá hinn al- menna klæðaburð, sem varð að vera létt- ur og þunnur vegna hitans; konurnar eru þó síðklæddar, en karimenn klæddust venjulegum iéttum kufli með mittisbelti. yrir um það bil 4 þúsund árum lifðu á eyjunni Krít þjóðflokkar, Sem nefndir voru Mínóar. Ef litið er á landa- kortið, sem hér fylgir, má sjá, að Krít er lítil eyja skammt undan ströndum Grikklands. Mínóarnir elskuðu eyjuna sína, þar var alltaf hlýtt og sólskin flesta daga ársins, og umhverfis þá var blátt Miðjarðarhafið. Hafið gaf þeim gnægð af fiski. Hvers kyns ávextir uxu á trjánum í hinni hlýju veðráttu, og nóg beitiland var fyrir kvikfénað þeirra, og grjót og timbur hvarvetna til bygginga. Það var þó ekki nóg af frjórri jörð til þess að rækta það kom, sem þeir þurftu, og þeir höfðu enga málma til þess að smíða sér verk- færi og vopn. Þeir urðu einhvem veginn að afla sér þeirra, og þess vegna gerðust Mínóarnir verzlunar- menn. Karlmennirnir felldu stóru trén, er uxu uppi í fjallshlíðunum, og smíðuðu sér flutningabáta. Þeir hlóðu þá með ávöxtum, víni, sem unnið var úr vínberjunum, smyrsluna af olíutrjánum, skinnavöm, fatnaði og fögrum postulínskrukkum, sem þeir gerðu af miklum hagleik. Síð- an sigldu þeif yfir hafið til annarra landa og seldu þá vöm, sem þeir höfðu ekki not fyrir sjálfir. Heim komu þeir aftur með korn, málma og annað, sem þá vanhagaði um. Öll þessi verzlun gerði Mínóana auðuga, og þeir byggðu sér fallegar Wmmmmmmsmm nmm mmm m \tmmmmrn 38

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.