Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1971, Síða 42

Æskan - 01.01.1971, Síða 42
llir, sem ákveða að stofna til fjölskyldu, ásetja sér um leið að reyna að leika nýtt hlutverk í lífinu: Ss!L- sem fyrstu hjálparstöð fyrir börn í alls kyns vandræðum. Foreldrar eiga að vera örugg höfn, þar sem fást ráð við öllu — frá þurrum buxum til korns I augað. Þetta hlutverk krefst ekki aðeins góðs vilja og ástar á börnunum, en einnig nokkurrar þekkingar á því, hvað fyrir getur komið. Þessi grein getur auðvitað aðeins tekið fyrir nokkur helztu vandamál, sem snerta börn. Ég mun þó leitast við að minnast á hin þýðingarmestu, í þeirri von, að þessi húsráð geti orðið dálítil hjáip til sjálfshjálpar, þegar vanda- málin steðja að. Til allrar hamingju eru þau fiest smá- vægileg og saklaus og eru auðleyst með hjartahlýju og bjartsýni, sem eru allsherjarmeðul i umgengni við börn. Næstum helmingur heilsuvandamála barna er því miður sálarlegs eðlis. Þau stafa af aðlögunarerfiðleikum, og þeim verð ég alveg að sleppa. Þar liggur venjulega að baki löng og margþætt saga, sem verður að leysa í hverju tilviki í samráði við heimilis- lækni, máski einnig við skólann, kennara og sálfræðing. Slys á börnum eru algeng, bæði á heimilum og þau, sem gert er að á slysavarðstofunni. Þá er hlýðnin fyrsta skilyrðið. Séu börnin vön að hlýða, munu þau venjulega hegða sér skynsamlega, þegar á þarf að halda. Hlýðni getur riðið á miklu, ásamt góðu fordæmi foreldranna í skynsamlegri og varkárri framkomu. Litil aðstoð til sjállshjálpar lyrir (oreldra Mörg slys á börnum eru auðvitað óhjákvæmileg, önnur stafa af hugsunarleysi, og hefði verið hægt að komast hjá þeim, ef eytt hefði verið meiri tíma og hugsun til þess að tryggja betur öryggi barnanna á heimilinu. Menn verða að reyna að hugsa skipulega um það, hverju börn geta fundið upp á. Þetta krefst hugmyndaflugs. Uppfinningasemi þeirra er takmarkalítil, og ógerningur er að tryggja sig gegn öllu, en ég ætla að nefna nokkrar helztu öryggisráðstafanir. Glugga og svalir ætti að girða með neti, og stigaop ætti að girða af. Öll eiturefni, hreinsiefni, skordýraeitur, beitta hluti og auðvitað eldspýtur og lyf á að geyma þar, ,,sem börn ná ekki til“. Munið eftir handtöskunni og nátt- borðsskúffunni, og munið að tæma öskubakka, svo að börnin fari ekki að gæða sér á innihaldinu. Slys á börnum ^ JÉm það bil helmingur af barnaslysum verður í M eldhúsinu, sem er hættulegasta herbergið í hús- Vr 8^ inu. Snúið höldunni á skaftpottinum að veggnum. matborðinu á ekki að vera síður dúkur, sem lafir niður. Munið, að setja ekki heitar kaffi- eða tekönnur eða því um líkt við borðbrúnina. Látið smábörn aldrei vera ein nálægt þvottavél eða upp- þvottavél í gangi. Þeim gæti dottið í hug að opna dyrnar og láta sjóðandi vatnið renna út! Látið setja öryggi á ryk- suguna og önnur rafmagnsáhöld. Eftirlit með rafleiðslum þarf að fara fram árlega. Oft hafa læknar varað við hættunni af beizlum á börn- um. Bezt væri að vera laus við þau, t. d. með þvi að nota rúm með háum grindum, eins og notuð eru á sjúkrahúsum. Helzt mega ekki vera nema 7 cm milli rimlanna, annars geta börnin ef til vill troðið kroppnum út á milli þeirra, án þess að höfuðið komist líka, og geta hengt sig á þennan hátt. Því miður hefur það oft komið fyrir. Reynslan sýnir, að sífellt verða slys af þunnum plast- stykkjum, þó að allir viti, hve hættuleg þau eru. Það þarf ekki að draga plastpoka yfir höfuðið til þess að kafna af því. Einfalt plaststykki er nóg til þess. Ef barnið sogar plastið þétt að andlitinu, myndast rafstraumur, sem gerir að verkum, að piastið límist þétt að munni og nefi og barnið kafnar. Notið t. d. aldrei plast sem undirlak í rúm. Bannið börnum að hlaupa með leikföng í munninum. Ef þau detta, geta þau brotið f sér tennurnar. Bannið þeim að leika sér með lykkjur um hálsinn eða annað, sem getur hert að. Lítið yfirleitt öðru hverju eftir

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.