Æskan - 01.01.1971, Page 49
Kl. 10 fyrir hádegi á björtum og falleg-
um júnídegi lagSi barnastúkan Sakleysið
nr. 3 af stað í skemmtiferð. Við fórum frá
Kaupvangsstræti 4. Við vorum eitthvað 70
krakkar, og auk þess voru 4 fullorðnir til
Þess að halda hópnum saman.
Bílstjórinn okkar hét Kjartan og var
bæði skemmtiiegur og góður bílstjóri.
J®ja, nú var haldið af stað, og það var
Qlatt á hjalla. Ég og Inga fórum fram í
bil og sungum tvö lög [ hátalarann og
fengum súkkulaðikex í verðlaun. Allir
sungu eins og þeir gátu.
Það var ekið sem leið liggur til Dal-
víkur, Þar stönzuðum við ekkert. Áfram
var haldið, þar til komið var að litlum
kofa, sem er rétt fyrir utan Dalvík. Þar
var öllum hópnum hleypt út, og þar fengu
allir appelsín og kex. Nú voru allir orðn-
ir saddir og héldum við nú áfram. Við
ókum út í Ólafsfjarðarmúla, og áfram til
Olafsfjarðar. Þar fengu allir frjálsan
klukkutíma og réðu sér alveg sjálfir. Sum-
ir fóru að synda og aðrir að skoða bæinn.
Ég fór með nokkrum öðrum til að tína
skeljar og kuðunga. Síðar var farið að
búast til heimferðar.
Við fórum sömu leið til baka. Skammt
fyrir utan Fagraskóg var aftur stanzað.
Allir fengu annan skammt af appelsíni og
kexi. Klukkan var farin að ganga fimm,
Þegar við ókum í bæinn. Allir krakkarnir
sungu hraustlega, þegar við ókum eftir
Glerárgötunni, því að lögreglan var á eftir
okkur. En þeir veifuðu bara í okkur, og
við veifuðum á móti. Að lokum var komið
að Kaupvangsstræti, þar sem ferðin hófst.
Ánægjulegur dagur var á enda.
Anna Halla Emilsdóttir.
10 ára.
Nýlega var stórgæzlumaður á ferð á Norðurlandi. Þar vlrðist
staða bindindismanna allgóð. Þar standa þeir ásamt öðrum æsku-
lýðs- og íþróttafélögum að bindindismóti um verzlunarmanna-
helgina, sem haldið er ár hvert ( Vaglaskógi. Á Akureyri eru sem
kunnugt er starfandi þrjár barnastúkur. Meðfylgjandi mynd er af
embættis- og gæzlumönnum Sakleysisins nr. 3, en gæzlumaður
þess er Sveinn Kristjánsson og honum til aðstoðar eru Kjartan
Jónsson og Sigurlaug Jónsdóttir. Sakleysið hefur þann góða sið
að fara í eina skemmtiferð að sumrinu. Er hér birt stutt en
greinargóð saga af slikri för.
Nú um 10 ára bil hafa bindindismenn á Suðurlandi haldið mót
um verzlunarmannahelgina. Fyrstu árin var það á Húsafelli í
Borgarfirði, eitt árið á Reykjum í Hrútafirði en nú hin síðari ár
hefur það verið á Galtalæk á Landi. Þessi mót bindindismanna
höfðu þau áhrif, að aðrir, einkum ungmennafélög, tóku upp
þennan sið.
Nú er það ósk stórgæzlumanns, að Unglingareglan taki virkari
þátt [ Galtalækjarmótinu en verið hefur. I sem flestum barna-
stúkum verði æfð atriði, sem hægt er að haía í sérstökum dag-
skrárþætti Unglingareglunnar. Þelta bið ég gæzlumenn að hafa
[ huga á suður- og suðvesturlandssvæðinu. Meðfylgjandi mynd er
frá móti bindindismanna í Galtalækjarskógi.
49