Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.01.1971, Qupperneq 71

Æskan - 01.01.1971, Qupperneq 71
_____________ Seltjarnarnes Brimið æðir upp að klett- óttri ströndinni. Holskeflurnar skella á gróandanum. Óhugn- anlegur kraftur þeirra rifur UPP graslendið. Stórir stein- hnullungar færast úr stað. Naustin við ströndina hverfa í sjávarúðánn. Veðurhamurinn er tryllingslegur. Grásvört steinbákn risa yfir öllum þessum náttúruliamför- 11 rn■ Það eru strandvirki frá timum seinni heimsstj’rjaldar- innar. Þau standa óhagganleg °far öllu, eins og stríð yfir HEIÐA — Framhalclssa^a í myntlum. friði. Samt er eitthvað í und- irvitundinni, sem segir, að friður hvili brátt yfir lágu nesinu. Bláleit birta færist upp á vesturloftið. Skýin tætast sundur. Þau gej’sast um him- ininn eins og ólmir riddarar. Storminn snöggherðir. Sjórinn í'fist og livítfreyðir. Öldurnar minnka. Skyndilega lægir vindinn. Allt er hljótt. Lífið stendur á öndinni. Svo fer að figna. Jafnt og þétt rignir heit- um regndropum. Sjóganginn lægir. Regnið skolar burt óró- ieikanum og ókyrrðinni. Poll- ar stórir og mórauðir mynd- ast á götunni. En svo? Mönn- um verður litið upp í himin- inn. Það er hætt að rigna. Ský sést varla á lofti. Himinninn er nær alheiður. Sólin glamp- aj- á strætinu. Nesið skartar sinum fegurstu djásnum: daggardropum og blómakrón- um, sem éru að opnast. Nátt- óran hj’rjar að græða það, sem veðrahamurinn hefur eyðilagt. Það er aldrei eins gaman að lifa og á þeirri stundu. Náttúr- an hefur aldrei verið eins fög- ur á Seltjarnarnesinu. Ivar Arnason. 189. AMMA getur ekki á sér setið að faðma Klöru aftur og aftur að sér. „Nú verðum við að senda honum pabba þínum skeyti og biðja hann að koma. En við segjum honum ekki ástæð- una. Þetta verður að koma á óvart, eins og það kom mér á óvart.“ Afi gengur út, stingur fingrinum upp í sig og flautar hvellt og lengi. Flautið bergmálar fram og aftur milli fjall- anna. Pétur, sem skilur merkið, kemur að vörmu spori. Hann tekur við skeytinu og hleyp- ur með það niður í þorpið. — 190. ÞEGAR hér er komið, hefur faðir Klöru, herra Sesemann, ákveðið að koma óvænt í heimsókn til dóttur sinnar. Hann er nú á leið upp fjallið. En það er um svo marga götuslóða að ræða, að hann er ekki viss, hvern þeirra skal halda. Þá kemur hann auga á Pétur, sem kemur hlaupandi með símskeytið í hendinni. „Er ég á réttri leið til hans afa?“ hrópar hann til Péturs. Pétur rekur upp óp og hleypur eins og byssu- brenndur. Hann hrasar og dettur. 191. PÉTUR fer í loftköstum niður hlíðina eins og hjólastóllinn fór. Til allrar hamingju brotnar hann ekki í mél, en stanzar dálítið viðutan niðri í þorpinu frammi fyrir bakaran- um, nákvæmlega á sama stað og stóilinn hafði Ient. „Nú, nú, þarna kemur einn enn,“ segir bakarinn. „Hverjum skyldi verða þeytt næst fram af, sem yrði mélinu smærri?" Pétur staulast á fætur og haltrar upp til geitanna sinna. Hann verkjar í hvern lim og lið. Hann er lafhræddur, því hann heldur, að Sesemann sé lögreglumaður, sem ætli að handtaka hann. 192. HERRA Sesemann er kominn upp að húsinu og hlakkar tii að koma dóttur sinni á óvart. En frá búsinu hefur sézt til hans. Tvær telpur koma á móti honum. Önnur er dökk- hærð með hrokkið hár. Hún styður stóra ljóshærða telpu, sem er bústin í andliti og rjóð í kinnum. Sesemann nemur staðar og starir. Augu hans fyllast tárum. Endurminningum skýt- ur upp. Þetta er lifandi eftirmyndin hennar móður hennar Klöru. Er hann að dreyma? Árgangur ÆSKUNNAR árið 1971 kostar kr. 380,00. Gjald- dagi blaðsins er 1. apríl n. k. Borgið blaðið á gjalddaga, því þá hjálpið þið til að gera blaðið enn stærra og fjöl- breyttara en nokkru sinni áður. Allir kaupendur ÆSKUNN- AR njóta hins sérstaka tæki- færisverðs á öllum bókum blaðsins. Verðmunur frá bók- söluverði á hverri bók er um 30%. 71
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.