Æskan

Årgang

Æskan - 01.10.1974, Side 47

Æskan - 01.10.1974, Side 47
okkar?" spurði Svennl. „Þær eru einmitt svo léttar og hiýjar." ,.Já, ég veit vel, að það er æðardúnn, því að ég fékk hann sjálfur á æskuheimili mínu og gaf foreldrum ykkar,“ svaraði frændi. „Nú skil ég, hvers vegna sængin mín er svona létt og hlý," sagði Sigga. „Já, ég segi það sama,“ mælti Svenni, „og mér þyklr líka mjög vænt um að heyra, að dúnninn í sængunum okk- ar skuli vera frá æskuheimili frænda." „Það gleður mig ailtaf að geta frætt ykkur um eitthvað, sem þið vitið ekki mikið um. En ég má til með að segja ykkur svolítið meira um æðarfuglinn. Þegar menn gerðu sér grein fyrir, hve æðardúnninn var dýrmætur, tóku menn að hugsa meira um fuglinn og fylgjast með honum um varptímann. Kom þá í Ijós, að æðarfuglinn er í eðli sínu gæflyndur, hefur ríka hneigð tii sambýlis við aðra fugla af sömu tegund um varptímann og vili gjarna njóta aðhlynningar og verndar mannsins á meðan varptím- inn stendur yfir. Af þessum ástæðum hafa mörg helmili um land allt, þar sem nokkrar kollur hafa verpt og allvel hagar tll, hlynnt á markvissan hátt að þeim um varptímann og þannig getað iaðað fuglinn að og stóraukið varpið, svo að það hefur gefið töluverðan arð og sums staðar mikinn. Nú hef ég fyrr sagt ykkur frá mörgum andartegundum, sem kusu sér dvalarstað á sumrin hjá okkur í Skógum, og að það var fyrst og fremst vegna kílslns og lónanna, sem voru svo mikil matarkista fyrir sundfuglana. Þegar ég man fyrst eftir mér, verptu æðarkollurnar hér °9 þar um landið á mjög dreifðu svæðl, en hvergi í þéttum flákum eins og þékkist allvíða. En það mun hafa verið um líkt ieytl og ég fór að veita lífinu einhverja töluverða at- hygll, að móðir mín hófst handa um það á skipulegan hátt a® koma upp æðarvarpi í hólmanum út við lónin. Hefur hún þá vafalaust heyrt eða lesið einhvers staðar um reynslu annarra á þessu sviði og langað til að gera tilraun sjálf." „En hvernig tókst þá þessl tilraun mömmu þinnar, frændi? ^ar hún einhvern umtalsverðan árangur?" spurði Svenni sPekingslega. „Já, börnin mín, hún bar f rauninni ágætan árangur. Þær voru að vísu ekki margar, kollurnar, tvö til þrjú fyrstu árin, er> eftir það fjölgaði þeim ört, svo að litli hólminn varð fljótlega alveg þéttsetinn. Og flest árin, meðan ég var heima, urpu í hólmanum um það bll 200 kollur á hverju vori. Og eins og þið getið nærri, var það alltaf einstakt gleðiefni að fá að fara með mömmu út í varphólrnann, 9anga milli hreiðranna, sem voru næstum hlið við hiið, ^,aPpa kollunum, sem margar voru svo gæfar, að þær hreyfSu sig ekki á hreiðrunum, hlusta á úið í blikunum, sem syntu tignarlegir í skartklæðum sínum kringum hólmann, °9 hjálpa mömmu eftir því sem hún óskaði." „En á hvern hátt hjálpuðuð þið henni, frændi?" spurði Slgga. „Já, og hvað þurfti að gera til að koma varpinu af stað °9 halda því við?“ spurði Svenni. „Þetta er skynsamiega spurt, börnin mín,“ sagði frændl, „°g nú skai ég svara því með nokkrum orðum. Undirbúningsstarfið á hverju vori, eftir að ég fékk að Vera með, var fólgið í því að laga vel til í hólmanum, STÆRRA BLAÐ Minnist þess, að eftir því sem áskrifendum ÆSKUNNAR fjölgar verður blaðið stærra og fjöl- breyttara. Á þessu merkisári í sögu blaðsins er takmarkið, að ÆSKAN komist inn á hvert barna- heimili landsins. Minnumst þess, að ÆSKAN er stærsta barna- og unglingablað landsins. Sýnið jafnöldrum ykkar þetta glæsilega blað og bendið þeim á að gerast áskrifendur strax. hreinsa til í gömlu hreiðrunum, búa til ný hreiður með þvf að grafa ofurlitiar lautir allvíða og fóðra þær innan með angandi heyi, sem komlð var með að heiman, svo að koll- unum litist vel á að búa þar um sig. Meðan varplð stóð yfir, var svo tvisvar farið í hólmann, til þess að fylgjast vel með öllu og taka nokkur egg, sem alltaf voru gott búsilag, þar sem þau eru svo stór. Hver koila skyldi hafa þrjú egg til útungunar, en það, sem umfram var, máttl taka. Allar æðarkollur eiga minnst fjögur egg og margar fimm til sjö, svo að það voru oft býsna mörg egg, sem við komum með heim. Ég held, að móðir mín hafi þekkt öll hreiðrin, svo að það var oftast auðvelt fyrir hana að veija eggin. Þó man ég vel, að í seinni ferðinni þurfti hún oft að skyggna eggln, elns og hún orðaði það, þ. e. að horfa í þau á móti sól tll að sann- reyna, hvort þau væru orðin unguð, en auðvitað voru aldrei tekin nema ný egg. í þeirri ferð tókum við oft svolítinn dún úr hreiðrum þeirra fugla, sem þegar höfðu reytt slg tölu- vert. Síðasta ferðin var svo farin, þegar kollurnar höfðu flestar eða allar ungað út og dúnninn hirtur úr hreiðrunum. Sfðan þurfti að þurrka dúninn og hrelnsa mjög vel og var það jafnan seiniegt og fremur vont verk, sem konurnar leystu af hendi ár eftir ár.“ „En frændi, — elga koliurnar enga óvini? Þurfti aldrei að vaka yfir varpinu?" spurði Svenni. „Jú, Svenni minn, æðarkollurnír eiga óvini, sem hiffa þeim ekkl og eggjum þeirra, ef þeir komast f færl. Verstu óvinir þeirra eru rebbl og svartbakur, en einnlg koma fleiri 45
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.