Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1925, Side 72
til Ameríku 1884, dvaldi í ArgylebygSinni í 4 ár.
Keypti þar land en seldi þaS bráÖlega aftur. Voru
þá öll lönd tekin þar um slóöir, en landnám að byrja
í Pipestone bygðinni í Manitoba. Flutti hann þang*
að vestur með fleirum og nam land skamt frá Ebor
járnbrautarstöðinni og þar bjó haun í 26 ár, ^4rið
1918 seldi hann bújörð sína og fluttist vestur til Point
Robtrts, keypti þar 35 ekrur lands með allgóðum
byggingum og býr þar nú. ifona Jóhanns er Karó-
lína dóttir Jónasar snikkara Pélurssonar og Sigríðar
Jónasdóttur, ættuð úr Aðaldal í Þingeyjarsýslu,
Karólína er fædd 1853 í Krossavík í Þistilfirði; ólst
upp hjá foreldrum sínum þangað til liún var 13 ára,
þá místi hún föður sinn og varð að sjá fyrir sér sjálf
eftir það. Hún lærði yfirsetukonufræði hjáÞorgrími
lækni Johnsen á Akureyri og hefir stundað ljósmóð-
urstörf síðan meira og minna auk heimilisanna og
farnast ætíð vel; dugleg, skyldurækin og samvizku-
söm hefir hún verið og er ekkert af þessu oflof, Hún
er prýðilega skynsöm, lesin og minnug og því hin við-
ræðubezta og skemtilegasta kona. í raun og veru er
Karólína meira en alt þetta, lnxn er stórmenni til sál-
ar og líkama og þó ekki nema meðalkona að vexti.
Bæði eru þauhjón gestrisin. Jóhann er prýðilega hag-
orður, var hestamaður mikill og gleðimaður á yngri
árum. Þau hjón hafa átt fiimn börn, eru öll dáin.
nema einn sonur, Jónas Gottfreð—getið hér að fram-
an—þau hafa alið upp sonardóttir sína, sem Lára
heitir og er lærð hjúkrunarkona,
Þorbcrgur Eiríksson Vog er fæddur á Tröð-
um í Hraunhreppi í Mýras. 20, okt. 1865. Móðir
hans var Guörún Sigurðardóttir Eiríkssonar Sigurðs-
sonar frá Tjaldbrekku — einn af hinum svonefndu
Tjaldbrekkubræðrum, sem víða koma við og margir