Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Side 33
ALMANAK
35
Talsvert var söngur æfður hér áður, þá hinn góðkunni
söngstjóri Brynjólfur Þorláksson var hér vestan hafs.
Myndaði hann hér söngflokk, er söng undir hans stjóm
við samkomur og á Islendingadögum að Iðavelli við
Hnausa, Man., ásamt fleiri flokkum, sem hann æfði í norð-
ur Nýja Islandi; en fremur virtist dofna yfir þessu góða
fyrirtæki við burtför hans til íslands um 1933. Samt er hér
kona, sem æfir söng í viðlögum, Mrs. Einar Vigfússon.
Glímur voru dálítið æfðai" hér, meðan Guðmundur
Sigurjónsson dvaldi hér vestra, en lagðist svo niður, þá
hann hvarf heim aptur.
Fremur góðir vegir eru komnir og byggðin að mestu-
leyti frí við vatnsárennsli, og góðir skurðir, svo komið er
í viðunanlegt horf hvað það snertir, því allt vatn hefur
orðið góða framrás.
Kornyrka er hér orðin töluverð og bændur hafa keypt
mikið af akuryrkjuverkfærum, og dráttarvélum (ti-actors),
þreskivélum og “Combines”, sem álitið er að útrými
þreskivélum að mestuleyti á næstunni. En yfirleitt hafa
bændur hér talsvert af gripum með kornyrkjunni. Hey-
sala var hér mikil fyrrum, en fer nú minkandi eptir því
sem akrar verða víðtækari.
Byggðin tilheyrir sveitinni Bifröst, sem nær yfir norð-
urhluta Nýja-lslands. En fyrr meir var Nýja-ísland ein
sveit.
Byggðarlandnámið var heppið með góða innflytjend-
ur, er voru framtakssamir og duglegir, samvinnuþýðir
félagsmenn; bar fljótt á þeirri eining, sem fús var að
vinna í þarfir sín og byggðarinnar. Ekki má skilja
eftir konur þeirra, því þær mættu sínum erfiðleikum sem
sannar hetjur, engu síður en þeir. Og víst er það, að erfið-
ara hefði margt orðið bóndanum, ef konan hefði ekki
lagt sinn hluta í þjónustu útiverkanna líka, frá inniverkum
sínum og barnaumsýslan.
Verða nú taldir hér þrír, er þóttu þar leiðandi menn: