Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Side 42
44
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
Ellen Mae, f. 24. okt. 1901, gift séra Agli H. Fáfnis,
Mountain, N. Dakota.
Mabel Emily, f. 4 maí 1904, umsjónarkona í landbún-
aði, Fargo, N. Dakota.
Estlrer Björg, f. 18. apríl 1909, gift Louis Madsen, sem
nú er liðþjálfi (Sargeant) í her Bandaríkjanna í Suður-
Þýzkalandi.
Carl Julius, f. 3 júlí 1912, kvæntur Lois Emily Beith,
landbúnaðarráðunautur, Fargo, N. Dakota.
Öll eru börn þeirra Freeman-hjóna mannvænleg mjög,
vel gefin og vel menntuð, og njóta almennra vinsælda.
Hafa þeir bræður, John, William og Carl (nú lýlega kom-
inn úr herþjónustu í sjóliði Bandaríkjanna, meðal annars
á Islandi) gegnt opinberum ábyrgðarstöðum í landbún-
aðarmálum og getið sér hið bezta orð, og gegnir sama
máli um þær systur Emily, sem hefir með höndum um-
fangsmikið umsjónarstarf á því sviði, og Esther, sem fram
til skamms tíma hefir haft á hendi mikilsvarðandi starf
í velferðarmálum.
Má því með sanni segja, að þau Guðmundur og Guð-
björg hafi átt sönnu barnaláni að fagna, en vitanlega
valda þar miklu um hin hollu og varanlegu uppeldisáhrif
úr heimahúsum. Þar við bætist stór hópur myndarlegra
barna- og bamabarna, og er ættleggurinn því mannmarg-
ur orðinn hér vestan hafsins og liggja greinar hans víða.
En allur er hinn fjölmenni ættmennahópur samrýmdur
mjög, tengdur traustum böndum blóðs og erfða, og kenn-
ir þar aftur hinna heilbrigðu og djúpstæðu áhrifa æsku-
heimilisins.
Eru það þessvegna eigi neinar ýkjur, þá er svo var að
orði komist fyrr í grein þessari, að heimili þeirra Guð-
mundar og Guðbjargar Freeman hefði verið höfuðból og
menningarmiðstöð, því að um svo margt hefir það, beint
og óbeint, sett svip sinn á byggðina. Njóta þau hjón einn-
ig mikillar virðingar og vinsælda sveitunga sinna og hinna