Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Blaðsíða 62
FRÓÐLEIKSMAÐURINN
SVEINN ÁRNASON.
Eftir Richard Beck.
Meðal Islendinga í Vesturheimi hafa verið margir
miklir fróðleiks- og bókamenn, fræðimenn í alþýðustétt,
og eru enn, þó að þeim ágætu mönnum fari nú, illu heilli,
óðum fækkandi, eftir því sem hin eldri kynslóð verður
þunnskipaðri. Hafa slíkir menn, eins og með heimaþjóð
vorri, verið prýði sveitar sinnar eða bæjar, og með ýmsum
hætti sett svip sinn á menningarlíf byggðar sinnar. Fram-
arlega í hópi fræðimanna í alþýðustétt vestur hér stóð
Sveinn Ámason, um langt skeið bókhaldari í Bremerton,
Washington, og óvenjulegur bóka- og fróðleiksmaður, en
hann lést að heimili sínu í San Diego, Califomia, þ. 21.
ágúst 1945.
Sveinn var fæddur á Vopnafirði þ. 27. febrúar 1869,
og var í föðurætt kominn af merkum bændaættum á
Austurlandi, sonur Áma Sigurðssonar, sýsluskrifara og
bókhaldara á Eskifirði og síðar gjestgjafa á Vopnafirði,
gáfu- og sæmdarmanns, og konu hans Kristjönu Soffíu
Stefánsdóttur bónda á Barði í Eyjafirði, er var myndar-
kona og vel látin. Fluttust þau vestur um haf úr Vopna-
firði til Norður-Dakota sumarið 1892 og námu næsta ár
land í Akra-byggð, en fluttust sex árum síðar til Brown-
nýlendunnar í Manitoba og námu þar land á ný. Er þeirra
því að verðugu og góðu getið í landnámssögu beggja
þeirra byggða, og vísast sérstaklega til hins ítarlega og