Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Qupperneq 72
74
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
-1946-
Jan.—Um áramótin sæmdi Bretakonungur Lt.-Col.
Einar Árnason (sonur séra Guðmundur og Sigríðar Árna-
son) heiðursmerkinu “The Order of the British Empire”
(O.B.E.) fyi'ir vísindalegar uppgötvanir varðandi hémað-
argögn á stríðsárunum, en hann var stuttu áður kominn
heim úr herþjónustu í verkfræðingadeild canadiska her-
ins.
Jan.—Snemma í þeim mánuði lauk Miss Sylvia Jónas-
son (dóttir þeirra Guðmundar F. og Kristínar Jónasson í
Winnipeg, Man.) prófi í fluglist af flugskóla Konnie Jó-
hannessonar þar í borg; er hún fyrsta íslenzka stúlkan
vestan hafs, sem lokið hefir prófi í þeirri grein.
Jan.—Blaðafréttir skýra frá því, að við nýlega afstaðn-
ar fylkiskosningar í British Columbia hafi Byron Johnson,
sem er íslenzkrar ættar, verið endurkosinn fylkisþing-
maður í New Westminster með miklum meirihluta, og
að hinn kunni íslenzki “hockey”-kappi og flugmaður,
Frank Frederickson, hafi verið kosinn í skólaráð Van-
couver-borgar, við síðustu bæjarstjómar-kosningar, með
miklu atkvæðamagni.
Jan.—I þeim mánuði var dr. Thorbergur Thorvaldson,
prófessor í efnafræði við Saskatchewan-háskóla, skipaður
forseti deildar háskólans í framhaldsnámsgreinum (Dean
of the New College of Graduate Studies), en dr. Thor-
valdson er víðkunnur vísindamaður, einkum fyrir rann-
sóknir sínar í sementsgerð.
Jan,—Jakob F. Kristjánsson frá Winnipeg var fulltrúi
Canadastjómar á allsherjarfundi um akuryrkju og verka-
mannamál, sem haldinn var í St. Louis, Missouri, í Banda-
ríkjunum í lok þessa mánaðar, en hann hefir undanfarið
haft með höndum störf á því sviði af hálfu stjórnarinnar.
9. febr.— Átti Gísli Jónsson, ritstjóri og skáld, sjötugs-
afmæli. Hefir hann tekið margháttaðan þátt í vestur-ís-