Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Blaðsíða 97
ALMANAK
99
11. júní 1873. Foreldrar: Páll Jónasson og Sigurbjörg Helga-
dóttir. Fluttist vestur um haf til Winnipeg 1897, hvarf heim
aftur aldamótaárið, en kom vestur á ný ári síðar, og nam
tveim árum seinna land að Lundar og var síðan búsettur á
beim slóðum. Bróðir þeirra Jónasar tónskálds og skáldanna
Kristjáns og Páls Pálssona.
12. Anna Bergþórsson, kona Kristjáns G. Bergþórsson verzlunar-
manns, á heimili sínu í Wynyárd, Sask. Fædd að Glæsibæ við
Eyjafjörð 8. des. 1882. Foreídrar: Friðrik Svarfdal hreppstjóri
Þorsteinsson og Ólína Ámadóttir. Kom til Vesturheims með
foreldrum sínum 1889, og átti framan af árum heima í N.
Dakota og Winnipeg.
17. Jón Einarsson, frá Lundar, Man., á Grace sjúkrahúsinu í Win-
nipeg. Fæddur í Geirshíð í Fjókadal í Borgarfjarðarsýslu 2.
ágúst 1860. Foreldrar: Einar Jónsson og Þórdís Jónsdóttir.
Fluttist vestur um haf til New York 1887, en 10 árum síðar til
Winnipeg og aldamótaárið til Lundar.
19. Arnfinnur (Ari) Jónsson, á sjúkrahúsinu í Eriksdale, Man.
Fæddur að Hlíðarhúsum í Jökulsárhlíð í Norður-Múlasýslu 9.
des. 1876. Foreldrar: Jón Arnfinsson og Sveinbjörg Sigmunds-
dóttir. Fluttist með þeim til Canada 1903 og hafði lengstum
síðan átt heima að Vogar, Man., og á þeim slóðum.
19. Kristján Kristjánsson, byggingarmeistari í Winnipeg, á Grace
sjúkrahúsinu þar í borg. Fæddur á Heiðurborg í Kaldaðarnes-
sókn í Sandvíkurhreppi í Árnessýslu 12. okt. 1863. Foreldrar:
Kristján Vernharðsson og Jórunn Halldórsdóttir. Kom vestur
um haf til Winnipeg 1887 og var þar búsettur til dauðadags.
19. Jósafat Ásgeir Pétursson, á sjúkrahúsi í Bellingham, Wash.
Fæddur árið 1858 að Svertingsstöðum í Miðfirði í Húnavatns-
sýslu. Foreldrar: Pétur Ásgeirsson og Anna Jósafatsdóttir.
Fluttist til Vesturheims 1894; var árum saman búsettur í
Dulutli, Minn., þvínæst nokkur ár í Mouse River byggðinni í
N. Dakota, en síðan á Kyrrahafsströndinni, lengstum í Blaine,
Wash.
25. Kristján Jónsson (Johnson) húsgagnasmiður, að heimili sínu í
Winnipeg. Fæddur á Hjarðarfelli í Miklaholtshreppi í Snæ-
fellsnessýslu 3. sept. 1873. Fluttist vestur um haf með for-
eldrum sínum til Winnipeg 1883 og átti þar heima jafnan
síðan.
25. Öldungminn Jón Helgason, að heimili sínu í Blaine, Wash.,
rúmlega 97 ára að aldri. Ættaður úr lsafjarðarsýslu, fluttist
til Ameríku 1893 og vestur að hafi 1902.