Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Qupperneq 39
ALMANAK
41
foreldra brúðarinnar, en settu brátt bú saman á eigin
spýtur og farnaðist vel.
Fór það að vonum, því að bæði voru þau hin ráðdeild-
arsömustu og lifðu eigi um efni fram, en Guðmundur var
hamhleypa að dugnaði og hlífði sér hvergi. Hafði hann
á þeim árum, sem hann var til heimilis hjá fóstra sínum
Lárusi Frímann við Akra, unnið að skógarhöggi vestur
undh Pembinafjöllum og dregið þaðan viðarækin á uxum
alla leið til Cavalier-bæjar, að bændavinnu á þeim slóð-
um og að járnbrautarvinnu bæði í grennd við Cavalier og
í Winnipeg. Eftir að hann fluttist vestur til Mouse River-
byggðar, vann hann enn austur í Islendingabyggðinni í
Pembinahéraði og annarsstaðar í N. Dakota, meðan bú
hans var lítið og heimatekjur rýrar, og féll það þá í hlut
konu hans að annast heimilisstörfin, og leysti hún þau af
hendi með þeirri forsjá og prýði, sem henni er lagið.
En þegar búið óx, og Guðmundur færði stöðugt út
kvíarnar, varð hann oft að hafa marga vinnumenn. Hann
eignaðist smámsaman fjölda landeigna og kostagóðra, og
bústofn að sama skapi. Lýsir búhyggni hans sér meðal
annars í því, að hann lagði kapp á það að hafa jafnan
hreinræktaðan gripastofn, og átti hann um skeið 400 gripi,
en stundaði jafnframt sauðfjárrækt, og mun hafa átt um
800 fjár, þegar flest var. Einnig lagði hann áherzlu á það
að hafa aðeins hesta af úrvalskyni. Ber því allt að einum
bmnni um ráðdeild hans og búskaparhyggindi, enda hefir
hann jafnan viljað vita fótum sínum forráð í öllu og aldrei
rasað um ráð fram.
Gat eigi hjá því farið, að jafnmikill athafnamaður og
ráðdeildar sem Guðmundur, ynni sér tiltrú og traust sveit-
unga sinna, enda kom það fljótt á daginn. Honum hafa
verið falin fjölmörg trúnaðarstörf innan héraðs og utan,
og fer þó mjög fjarri, að hann hafi sókst eftir slíkum virð-
ingarstöðum. En allar hefir hann skipað þær með sóma,
innt af hendi embættisstörfin með frábærri skyldurækni.