Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Blaðsíða 54
v'Tl v
GUÐNÝ HOFTEIG JOSEFSON.
1871 -1946.
Eftir G. J. Oleson.
Þessi gáfaða og prúða merkiskona andaðist á sjúkra-
húsi í Marshall, Minn., 3. maí, 1946. Hennar hefir hvergi,
svo eg viti, verið minnst í íslenzkum blöðum.
Eg get ekki þegjandi gengið
framhjá gröf hennar, þó allir
aðrir þegi. Guðný var vestur-ísl-
enzk. Hún var að vísu fædd á
Islandi, en hún ól því sem næst
allan aldur sinn hér vestra. Fædd
á Skeggjastöðum í Jökuldal, 12.
okt. 1871. Foreldrar: Sigbjörn
Sigurðsson Hofteig ° og kona
hans, Steinunn Magnúsdóttir frá
Skeggjastöðum. Guðný fluttist
með þeim til Minnesota 1878, og
festu þau byggð í Lyon County.
„ * , tt r. • t ' r Þar ólst Guðný upp. Barnaskóla-
Guony Hofteig Josefson , , *./, ,rr, , . .
nam stundaði hun a hermaskola
og síðan í Minneota. Hún útskrifaðist af kennaraskólan-
um í Winona, 1897. Um margra ára skeið kenndi hún við
skóla, en lét ekkert tækifæri ónotað, að auka þekking sina
í öllum greinum. Hún stundaði nám við Gustafus Adol-
phus mentaskólann í St. Peter, Minn., og útskrifaðist það-
“ Sjá æfisögu S. S. Hofteig í Almanaki O.S.Th., 1940, bls. 41-50.