Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Qupperneq 50
52
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
hendi. Auk þess hefir hún ætíð verið fljót til að sýna
hjálpsemi, þegar á lá, og styðja alla viðleitni til menningar
og framfara. Jeg spurði Soffíu eitt sinn, hvort hún hefði
ekki þurft að halda margar vinnukonur, meðan börnin
voru ung. Hún lét lítið yfir því, en sagðist fyrst hafa tekið
vinnukonu, þegar sjötta barnið hefði fæðst. Af slíku má
sjá, að hún hefir verið hraust og ekki legið á liði sínu.
Um Jón Líndal mætti margt segja. Hann er ekki stór
maður vexti, en “þéttur á velli og þéttur í lund.” Hann
mun í flestu hafa reynst meira en meðalmaður í sínum
verkahring. Hann er yfirlætislaus maður. Tryggm- vinur
vina sinna, en drenglyndur og hreinskilinn andstæðingur,
þegar á milli ber. Hann hefir traust allra hugsandi manna
og er vinsæll í sveit sinni. Vel er hann viti borinn, og
hefir aflað sér meiri þekkingar af lestri bóka, en flestir
aðrir, sem ekki hafa á skóla gengið. 1 þá átt bendir stór
bókaskapur í húsi hans, fullur af vel hirtum fræðibókum
á ensku og íslenzku. Þær bækur hafa eflaust verið keypt-
ar til þess að lesa þær, en ekki til að sýnast.
Á fyrstu búskaparárum Jóns var engin jámbraut þang-
að í byggðina. Menn urðu því að sækja nauðsynjar sínar
til Winnipeg og flytja á hesta- eða uxavögnum. Jón mun
hafa haft dálítil peningaráð og byrjaði því verzlun með
ýmsan smávarning. Ekki mun þessi verzlun hafa gefið
miklar tekjur, en þó mun hún hafa borgað sig allvel, því
annars mundi Jón ekki hafa haldið henni áfram; en það
gjörði hann, þar til jámbraut var lögð gegnum byggðina
og stærri verzlanir risu upp.
Jón var snemma kosinn til ýmsra opinberra verka,
sem hægt var að fela bændum, því hann mun hafa verið
færari í ensku en flestir sveitungar hans. Hann var 17 ár
í sveitarstjórn og gegndi oddvitastörfum um eitt skeið,
meðan oddviti sveitarinnar var undir málssókn. Var það
þakkað harðfylgi Jóns, að sveitin beið lítið tjón við þau
málaferli. Hann var í 12 ár í skólastjórn, og gegndi þess-