Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Side 80
82
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
19. sept.—Alþjóðaþingi verkamanna (International
Labour Conference), sem hófst þann dag í Montreal, var
Victor Anderson, prentari og bæjarráðsmaður í Winnipeg,
einn af fulltrúum Canada, og F. H. Fljózdal, Detroit,
Mich., heiðursforseti Alþjóðafélags viðgerðarmanna járn-
brauta, einn af fulltrúum Bandaríkjanna.
19. sept.—Þjóðræknisdeild stofnuð að Lundar, Man.,
með rúmum 30 félögum. Embættismenn: séra Halldór
E. Johnson, forseti; Mrs. H. Sveinson, ritari; og Skúli Sig-
fússon, fyrrv. fylkisþingmaður, gjaldkeri. Daginn áðrn:
hafði grundvöllur verið lagður að stofnun þjóðræknis-
deildar að Hayland, Man.
25. sept.—Átti vikublaðið “Heimskringla” sextugsafmæh.
Var þeirra merku tímamóta í sögu blaðsins minnst með
útgáfu mikils og vandaðs hátíðarblaðs og fjölbreyttu að
efni. Núverandi ritstjóri er Stefán Einarsson, er skipað
hefir þann sess um 20 ára skeið.
7. okt.—Hóf Karlakór Reykjavíkur söngför sína í Vestur-
heimi með samkomu í Newton, New Jersey, og söng síðan
í mörgum stórborgum víðsvegar í Austur-, Suður, og Mið-
Vesturríkjum Bandaríkjanna, víðast við mjög mikla að-
sókn og alstaðar við almenna hrifningu. Löndum sínum
vestan hafs voru söngmennirnir sérstaklega aufúsugestir
og var þeim, af hálfu Islendinga, fagnað með veizlum í
Washington, D.C., New York, Chicago, Gardar, N. Dak.,
Grand Forks, N.D., Winnipeg, Fargo, N.D., og Minne-
apolis. Alls hélt kórinn um 60 söngsamkomur, og lauk
sigurför hans með samkomu í Town Hall í New York 15.
des. Sigurður Þórðarson tónskáld er söngstjóri kórsins,
en einsöngvarar voru Stefán Guðmundsson Islandi, óperu-
söngvari og Guðmundur Jónsson, baritónsöngvari; farar-
stjóri var Þórhallur Ásgeirsson, fulltrúi í utanríkisráðu-
neyti Islands.
Okt.—Hjálmar A. Bergman, yfirréttardómari í Mani-
toba, lét af forsetastarfi í háskólaráði Manitoba-háskóla,