Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Page 37

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Page 37
ALMANAK 39 verður saga þeirra einungis rakin hér í nokkrum megin- dráttum. Þau Guðmundur og Guðbjörg voru bæði í hópi hinna fyrstu frumbyggja íslenzkra í Mouse River-byggðinni; hann var í för með föður Guðbjargar og stofnanda byggð- arinnar, Helga Guðmundssyni (Goodman), í landskoðun- arferðinni þangað frá Akra, N. Dakota, haustið 1886, eða fyrir réttum 60 árum síðan, en Guðbjörg fluttist þangað með móður sinni og bræðrum vorið eftir. Er einkar skil- merkilega og næsta ítarlega skýrt frá stofnun byggðar- innar, lýst landnámsmönnum og konum hennar og fél- agslífi þar, í grein Sigurðar Jónssonar, “Landnám Mouse River-byggðar í N. Dakota” (Abnanak O. S. Thorgeirsson- ar 1913), og vísast þangað, en greinarhöfundur átti um langt skeið heima á þeim slóðum og var því gagnkunn- ugur söguefni sínu, og að auk glöggur maður, réttorður, og ritfær vel. Guðmundur Freeman er Vestfirðingur að ætt, fæddur 24. júlí 1865 að Köldukinn í Dalasýslu, sonur Jóns bónda þar, Jónssonar frá Þorsteinsstöðum, og konu hans Sigríð- ar Eyvindardóttur frá Gerðubergi í Hnappadalssýslu. Föður sinn missti Guðmundur sex ára, en móðir hans giftist síðar Lárusi Rjörnssyni Frímann á Harastöðum í Dölum, og fluttist Guðmundur með þeim vestur um haf árið 1874. Eftir að vestur kom, tók hann síðar upp ættar- nafn stjúpa síns, Freemansnafnið, eðlilega stafað á am- eríska vísu. Snemma á árum, meðan fjölskyldan var ein sér af Islendingum í amerísku umhverfi, festist einnig við hann “George”-nafnið í stað Guðmundar, sem Ameríku- mönnum vafðist um tönn í framburði, og hafa það orðið örlög margra íslenzkra nafna vestur þar að breytast með ýmsum hætti af sömu ástæðum, þó eigi verði það hér nánar rakið. Þau móðir Guðmundar og stjúpi hans settust fyrst að í Kinmount, Ontario, og munu hafa dvalið þar árlangt

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.