Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Page 38

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Page 38
40 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: eða þar um bil, en fluttust síðan til borgarinnar Elk Rap- ids í Michigan-ríki. Voru þar sárfáir Islendingar fyrir, og ólst Guðmundur því upp í algerlega amerísku umhverfi, utan heimihs síns, og mótaði það hann skiljanlega með ýmsum hætti, gerði hann innlífaðan ameriskum hugsun- arhætti og hugsjónum, því að hann var þá einmitt á þeim aldri, þegar unglingar eru næmastir fyrir utanaðkom- andi áhrifum. Sumarið 1881 flutti Helgi Guðmundsson, sem að ofan getur og áður hafði búið að Ölvaldsstöðum í Mýrasýslu, vestur um haf ásamt skylduhði sínu og lagði leið sína til Elk Rapids, því að þar var fyrir frændfólk hans, en þær Helga kona hans og Sigríður Eyvindardóttir, móðir Guðmundar Freeman, voru systur. Eigi var þó Guð- björg dóttir Helga með í förinni það sinn; hún kom vestur um haf til foreldra sinna í Elk Rapids ári síðar, en hún er fædd að Öldvaldsstöðum 17. maí 1872. Árið 1884 fluttust báðar umræddar fjölskyldur til Akra, N. Dakota og settust þar að, en ekki festi Helgi Guð- mundsson þar yndi, enda var þá þröngbýlt orðið þar um slóðir og lítil völ heimihsréttarlanda. Tók hann sig því upp, sem fyrr segir, haustið 1886 og fór í landkönnunar- ferðina vestur í Mouse River dal og ákvað að setjast þar að. Guðmundur Freeman, sem verið hafði með í land- könnunarferðinni, hvarf austur aftur þá um haustið og dvaldi um veturinn við Akra, en réðist um vorið aftur til ferðar vestur í nýbyggðina með þeim frændum sínum, sonum Helga. Þau Guðmundur og Guðbjörg giftust á kirkjuþinginu að Mountain, N. Dakota, í júní 1888, og gifti séra Friðrik J. Rergmann þau, en hann var þá eini íslenzki presturinn í N. Dakota. Brúðkaupsferðin var farin á vagni, er uxar gengu fyrir (eins og tíðkaðist á þeim frumbýlingsárum), frá Mountain vestur til Mouse River-nýlendunnar, og tók sú ferð vikutíma. Bjuggu ungu hjónin fyrst á heimili

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.