Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Page 53

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Page 53
ALMANAK 55 öll byggðin og Lundarbúar tækju þátt í því, og auk þess voru allmargir lengra að komnir. Það telst svo til, að það muni hafa verið full 500 manns, sem þágu þar veitingar, og voru þó margir úti, sem ekki komust að. Mun það einsdæmi, að svo margt manna hafi sótt slík samsæti hér í sveitum. Má af slíku marka vinsældir þeirra hjóna. Auk þess bárust þeim samúðarskeyti frá ýmsum fjarverandi, þar á meðal frá föður brúðarinnar, Jóni Þorsteinssyni, sem er velmetinn öldungur, 90 ára að aldri, vestur í landi. Samsætið fór vel fram undir stjórn tengdasonar brúð- hjónanna, Heimis Þorgrímssonar. Margar ræður voru haldnar og gjafir gefnar. Það, sem setti sérstakan svip á samkvæmið, var hinn stóri og fríði hópur barna þeirra hjóna, sem þar voru öll viðstödd. Alls munu nú vera í fjölskyldunni 65 meðlimir, að meðtöldum barnabörnum þeirra og tengdabörnum. Þau eru enn ern og hraustleg gömlu hjónin, þó þau séu nú um og yfir 70 ára. Mættu ókunnugir, sem sáu þau í brúðkaupinu, ætla þau nær 50 ára en sjötugu. Hver sveit, sem á mörg hjón þessum lík, er vel mönn- um skipuð.

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.