Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Page 71

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Page 71
HELZTU VIÐBURÐIR meðal Islendinga í Vesturheimi. -1945- 15. nóv.—Forseti Islands sæmdi frú Rannveigu Schmidt riddarakrossi hinnar íslenzku fálkaorðu í viðurkenningar- skyni fyrir útbreiðslustarf hennar í þágu Islands, en frúin, sem árum saman hafði verið búsett í Bandaríkjunum, hefir flutt þar fjölda erinda og ritað blaðagreinar um íslenzk efni. 3. des.—Hundrað ára dánarafmælis Jónasar skálds Hallgrímssonar minnst með virðulegri og fjölsóttri sam- komu í Winnipeg, sem Þjóðræknisfélagið og þjóðræknis- deildin “Frón” stóðu að sameiginlega. Dr. Richard Beck, forseti félagsins, flutti minningarræðrma, en Guðmann Levy, forseti “Fróns”, hafði samkomustjóm með höndum. Des.—Blaðafregn skýrir frá því, að Miss Lilja Sigvald- ason (dóttir Sigurðar og Eggertínu Sigvaldason, að Víðir, Man.), er lauk miðskólaprófi síðastliðið vor, hafi hlotið heiðurspening Landstjórans í Canada fyrir námsgáfur og dugnað og námsstyrk frá fylkinu (Manitoba Scholarship), að upphæð $320.00, til tveggja ára; hefir hún þegar hafið nám í vísindum á Manitoba-háskóla. Des.—Á ársþingi hins merka og fjölmenna félags mál- fræðinga og háskólakennara í Bandaríkjunum, “Modem Language Association of America”, var dr. Halldór Her- mansson, prófessor í Norðurlandamálum og bókmenntum við Comell-háskóla, Ithaca, New York, kosinn vara-for- seti félagsins.

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.