Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Page 79

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Page 79
ALMANAK 81 Californíu, vakti geysihrifningu með söng sínum. Daginn áður höfðu Islendingar í Seattle, Wash., haldið árlega þjóðminningarsamkomu sína að Silver Lake, við góða að- sókn. Ágúst—1 árlegri kvæðasamkeppni í Seattle-borg, Wash., sem fram fór stuttu áður, vann Mrs. Hólmfríður (Freda) McDonald (dóttir Sigurðar og Steinunnar Björns- son) fyrstu verðlaun. 8. ágúst—Lauk Marinó Ólafur Ólafsson (sonur séra Kristins K. Ólafson og frú Friðrikku), skólastjóri í Minto, N. Dak., meistaraprófi í uppeldisfræði með ágætiseink- unn á ríkisháskólanum í N. Dakota og hlaut menntastigið “Master of Science in Education.” Ágúst—Laust fvrir miðjan mánuðinn lögðu þeir Grettir L. Jóhannson ræðismaður og ritstjórarnir Einar P. Jónsson og Stefán Einarsson, ásamt frúm sínum, af stað í för sína til Islands, í boði Þjóðræknisfélagsins á fslandi og ríkis- stjómarinnar. Dvöldu þau í sex vikur á fslandi, ferðuðust víða um landið og áttu alstaðar frábærum viðtökum að fagna. Fór ferðafólk þetta flugleiðis yfir hafið báðar leiðir. Ágúst—Tilkynnt, að J. P. Sigvaldason (sonur Mr. og Mrs. E. Sigvaldason að Baldur, Man.) hafi verið valinn aðstoðarritari í Canada House í Lundúnum, sem stendur í sambandi við utanríkismáladeildina þar, en hann hafði áður skipað framkvæmdarstjórastöðu hjá fræðslumála- deildinni í Manitoba. 2,—sept.—Kunnugt gert, að dr. P. H. T. Thorlakson hafi verið skipaður prófessor í læknavísindum við Mani- toba-háskóla og jafnframt yfirskurðlæknir við Almenna sjúkrahúsið í Winnipeg, en hann er löngu víðkunnur fyrir læknisstörf sín og félagi í fjölmörgum læknafélögum. Sept,—Sigurður Sigmundsson, rafmagnsfræðingur í Vancouver, B.C., sem undanfarið hafði verið aðstoðar- umsjónarmaður flutninga hjá British Columbia Railway Co., skipaður yfirmaður farþega og flutningstækja félags- bis, sérstaklega utanborgar.

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.