Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Page 82

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Page 82
MANNALÁT MARZ 1944 21. Snorri Kristjánsson, í San Diego, Calif. Fæddur að Þverá í Þingeyjarsýslu 8. okt. 1862. Foreldrar: Kristján Stefánsson og Jóhanna Árnfinnsdóttir. Fluttist til Ameríku 1899 og hafði í nærri aldarfjórðung verið búsettur í San Diego, en áður í Nýja Islandi, Norður-Dakota og Mozart, Sask. JÚLl 1945 20. Guðrún Sigurðardóttir (Gíslason), á heimili sínu að Akra, N. Dak. Fædd á Bæ við Steingrímsfjörð í Strandasýslu 25. des. 1866. Foreldrar: Sigurður Gíslason og Guðrún Jónsdóttir. Kom með þeim vestur um haf til N. Dakota 1883. 23. Kristján Tryggvi Dínusson, að heimili sínu í Svoldar-byggð í N. Dak. Fæddur á Mýlaugsstöðum í Suður-Þingeyjarsýslu 30. apríl 1875. Foreldrar: Dínus Jónsson og Kristín Andrésdóttir. Fluttist með þeim til Vesturheims 1879, fyrst til Nýja íslands, en til N. Dak. 1882. 29. Jóhannes Lárusson, smiður, í Vancouver, B.C. Fæddur 11. sept. 1872 á Narfeyri við Breiðafjörð. Foreldrar: Lárus Jóns- son og Ingveldur Björnsdóttir.#Kom til Ameríku 1912 og hafði lengstum átt heima í Prince Rupert, B.C. ÁGÚST 1945 21. Sveinn Árnason, fyrrv. bókhaldari, að heimili sínu í San Diego, California. Fæddur 27. febr. 1869 á Vopnafirði. Foreldrar: Ámi Sigurðsson, gjestgjafi og fyrrv. sýsluskrifari, og Kristjana Soffía Stefánsdóttir. Fluttist vestur um haf til N. Dak. 1889, varð síðar landnámsmaður í Brown, Man., en átti lengstum heima á Kyrrahafsströndinni. Fróðleiks og bókamaður mikill. (Sjá minningargrein um hann í þessum árgangi Almanaksins). SEPTEMBER 1945 7. Þorsteinn Sveinsson (Thorstein Sveinson), smiður og land- námsmaður, að heimili sínu á “Svalbakka” í Nýja íslandi. Fæddur 26. jan. 1856 í Kárdalstungu í Húnavatnssýslu. For- eldrar: Sveinn Þorsteinsson og Margrét Sigurðardóttir. Fluttist til Vesturheims 1888 og hafði verið búsettur í Nýja Islandi frá því ári síðar. 17. Kristján Eggertson Fjelsted, landnámsmaður, að heimili sínu að Lundar, Man. Fæddur á Hallbjarnareyri í Eyrarsveit í Snæ- fellsnessýslu 30. maí 1864. Foreldrar: Eggert Vigfússon Fjeld- A

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.