Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1953, Page 34

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1953, Page 34
34 ÓLAFUR S. TÍ40RGEIRSS0N: að gæti hrevft sig. Eg held, að eg hafi roðnað undir lof- ræðum lians um mig, og vildi gjarnan breyta umtalsefni hans,—en þagði þó. Eftir litla stund kom Kjartan skip- stjóri, fjörlegur og aðlaðandi glæsimenni, er reyndist mér eins og bezti bróðir, er sönn unun var að vinna með, eins og eg átti eftir að reyna. Ingvar bað Kjartan að taka mig í vinnu, ef þess væri nokkur kostur, sagðist engum trúa fyrir mér eins vel og honum. Eftir dálítið samtal réðist eg svo hjá Kjartani, til ársloka, en lengur bjóst hann ekki við að fiska þennan vetur, en taldi lík- legt að geta þá komið mér fyrir hjá öðrum, er lengur fiskuðu. Kaupið var $25.00 á mánuði, venjulegt kaup fvrir óvana menn, um þessar mundir. Næsta dag fór eg með feðgunum frá Jónsnesi til Sel- kirk, en þar dvöldum við í 2 daga; varð eg lasinn af liita- veiki, er þó moltnaði úr mér von hráðar. Eg gleymi aldrei viðtökunum á Jónsnesi né hversu annt að Björg kona Stefáns lét sér um mig, meðan eg var lasinn. Var eg þar heima í fáa daga, en fór þá með Kjartani á seglbát til Selkirk, og svo aftur um hæl til Mikleyjar, og sam- dægurs norður í fiskiverið á Bull Head, en þangað voru félagar okkar komnir á undan okkur. Eg man enn hina prúðu og gáfuðu konu Kjartans skipstjóra, Vilhelmínu, dóttur séra Odds V. Gíslasonar. Með háttprýði sinni og skilningi fannst mér hún brúa fjarlægðina milli Islands og mín. Er eg fór út í fiskiverið lánaði hún mér bæknr til lesturs, bæði norskar og dansk- ar, er nægðu mér og glöddu í tómstundum vetrarins. Það var eins og að koma í góð foreldrahús er eg kom aftur að Jónsnesi, í byrjun marz-mánaðar eftir dvöl mína á vátninu. Stefán bóndi reyndi að aftra mér frá að fara vestur að hafi, “Þar sem svo margir tvndust”. Hann hafði líkt álit á för minni þangað eins og fólk heima í sveit minni hafði á Ameríkuferðum, og er þá nóg mælt. Eg á bjarta og hressandi minningu um alla, er eg kynntist á
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.