Fróði - 01.09.1913, Page 30
30
FROÐI
banamein 190 manna af hverjum 100,000; en 1890, 243; árið
1900, 314; áriS 1908, 387. Meira en tvöfaldast á einum mannsaldri.
Um þenna hættulega sjúkdóm vita menn þaö, að hann stafar
af fæSunni, og hingað til hafa menn tali'ð hann ólæknandþ Það
er því gleðiefni fyrir menn að heyra fréttir þessar, ef þær sannar,
reynast, þó að þær séu nokkruan erfiðleikum bundnar og ekki ætíð
líægt að koma þeim við.
En þó að það kynni nú aö reynast mögulegt að lækna sjúkdónl
þenna, þá er þó önnur spurning miklu rneir varðandi fyrir hvern
og einn, ungan sem gamlan. En það er þessi: “Hvernig eigum
vér að varna því, að œðar manna sýkist svonaf Það er æfinlega
miklu meira virði að koma í veg fyrir sjúkdóminn, en að lækna
hann. En nú vill svo vel til að þetta er ofur einfalt, ef menn
aðeins vilja, því að sjúkdómur þessi kemur af lifnaðarháttum, senl
hægt er að breyta.
Skaðlegar og hættulegar venjur. : i \
Þeir menn, sem kostgæfilega hafa rannsakað hluti þessa, hafa
komist að þeirri sannreynd, sem mö'rgum lcann að þykja furðuleg.
En hún er sú, að mjög mikill meiri hluti manna, sem náð hafa1
meðalaldri, hafa vanist á að neyta fæðu þeirra'r, sem þeim er bein-
línis skaðleg, fæðu þeirrar, sem raunar hægt og seint, en áreiðanlega
eitrar likama þei’rra og líffæri, flýtir fyrir hrörnun og elli, og á
endanum, veldúr dauða þeirra fyrri eða síðar.
Sú staðhæfing er engin nýung, að meiri hluti manna etur of
mikið. En rannsóknannenn hinna, nýrri tima láta sér ekki nægja
að nema þar staðar, þeir fara lengra og benda á þær fæðutegundir,
sem valdar séu að þessum og þessum sjúkdómi. Þeir sem komnir,
séu yfir miðaldur, hafi vanið sig á að neyta fæðu, sem í sér hafi
meira af holdmyndandi efnurn, en góðu hófi gegnir. — Það er
með öðrum orðurn, af fæðutegundum, sem í sér hafa mikið af hold-
gjafa, nitrogen — en aðaltegundir þær eru egg og alskonar
kjötmeti. í j 1 1 . .1 ; íl i.j