Fróði - 01.09.1913, Blaðsíða 58
58
FRÓÐI
bjartar og lífgandi og heilsugefandi hugsanir, en vera ekki að sýta og
væla og hugsa sér að það sé ómögulegt aö losna viö þessar kvalir, seni
þeir lítSi. Þær séu svo miklar, þær séu svo þrálátar, þær séu alveg ó-
læknandi. Hverjum, sem þannig hugsar, er þaö alveg mátulegt, mátu-
legt þó aö hann tifaldi kvalir sínar og sársauka fyrir aöra eins fávisku
og flónsku; svoleiöis fólki er ómögulegt liö aö ljá; þeir e'Sa þær eru sínir
eigin böSlar, og oftast nær aS maklegu.
Tæring.
Dálítið uni tæringu. — Hdgar A. Forbes.
Þaö er býsna löng leið aö labba hana, frá Hippocrates (í. 460 f. Kr.ý
og alt til vorra tíma. En alla þessa leiö hafa menn veriö aö tala um
og berjast við tæringuna. Og menn eru loksins búnir aö fræöast svo
mikið um sýki þessa, aö þaö má segja, aö menn viti alt um hana, nema
hvernig menn geti læknaö hana; því aö aldrei hefur nokkur maöur
fundiö meöal viö henni.
1. “Consumption” eöa “fehtisis” er tæringin kölluö þegar hún er
i lungunum; “scrofula” eða kyrtlaveiki er hún kölluö, þegar hún er í
kyrtlunum, og undir ótal, ótal nöfnum gengur hún, alt eftir þvi, hvort
hún er í beinunum, liöunum, vöövunum, því aö frá hvirfli til ilja er
enginn hluti líkamans óhultur fyrir henni.
2. Vér vitum allir, hvaö orsakar liana, þessa veiki. Það er ofur-
litill maur eöa maurildi, sem læknar kalla “bacillus tuberculosis”.
Koch, hinn nafnkunni þýzki læknir, sá hann fyrstur; þaö er nú ekki
lengra síöan, og í rauninni segja vísindamenn, aö óvættur og morö-
vargur þessi heyri eiginlega til jurtaríkinu. Til allrar hamingju er
fita nokkur á hverjum þessum maur eöur bakteríu, og leggi menn þá í
anilín-vökva, þá veröur fitan rauð, og fyrir þáð er léttara að sjá þá
og þekkja frá öðrum. Hæglega má sjá og greina maura þessa í stækk-
unargleri, sem stækkar 300 sinnum. Rækta má þá í glerpípum, rétt
oins og blóm í blómagarði.