Fróði - 01.09.1913, Qupperneq 59
FRÓÐI
59
3. Menn þykjast vita, hvernig maurar þessir komast inn í lík-
ama manna. Margir neita því aS þeir séu arfgengir. En menn draga
þá inn í andardrættinum, eða gleypa þá í fæöunni, oftlega eftir aí5 þeim
hefur verið spýtt upp úr tæringarveikum sjúklingi.
Ýmsir merkir læknar hafa reynt aö telja tæringarmaura þá, sem
ganga upp úr tæringarsjúkum mönnum á hverjum 24 klukkustundum.
Einn taldi fjórum sinnum á þremur mánuðum maurana, sem gengu
upp úr manni einum á sólarhringnum; þeir voru minst 1,500,000,000 og
mest 4,300,000,000 feða ein bilíón og fimm hundruð milíónir, og fjórar
bilíónir og þrjú hundruð milíónirý. Þetta er býsna mikill hópur, ef
menn hafa hugmynd um tölur þessar. Þær eru allar í hrákanum, þessar
bakteríur, og þegar hrákinn þornar, þá er scm þeim sé ungað út, þær
eru þá lausar eins og fræ, sem fellur á jörðu, og geta fariö að ækslast
aftur, og eru svo léttar, að þær fljúga um loftið með hverjum vind-
gusti. Það þarf ekki nema ofur lítinn loftstraum til aö lyfta þeim
frá jör'öu, og svo setjast þær á matinn, eöa synda um í vatninu, og vér
svelgjum, ekki eina eöa tvær, heldur langar lestir af þeim, svo aö þaö
er furöa mikil, aö nokkur ma'öur skuli geta lífi haldiö.
4, -—Og meira vitum vér um þær en þetta, eftir aö þær eru komnar
inn í líkamann. öllum fjöldanum, er vér svelgjum, er sálgað áöur
en þær gjöra ilt af sér. Þaö eru ótal hættur á leið þeirra, eftir aö þær
eu komnar inn fyrir varir manna. En líffærin eru titbúin til þess aö
sálga þeim. En viö og viö kemst ein og ein baktería inn í blóöstraum-
inn og rennur meö honum þangaö til hún einhverstaöar finnur hreið-
ur eöa hæli, þar sem hún getur sest aö og búiö um sig. En geti hún
þaö, þá ækslast hún og margfaldast ákaflega fljótt.
En nú koma “pólitíin” eöa gæsluverðir líkamans og giröa um hvert
eitt þetta tæringarbú, hvort sem þar eru tugir eöa þúsundir íbúa; giröa
um þaö svo rækilega, sem hægt er, gjöra belg utan um þaö og loka á
allar hliöar; og þetta er það, sem gefiö liefir sýkinni nafn: tuberculus
=dálítill snúöur eöa bóla, berkill, brigsl.
Nú eru þessir óþörfu gestir, eöur innbrotsmenu, lokaöir þarna
lr>ni, sem herflokkur í kastala einum; en um kastala þenna setjast hinir
hvítu hermenn ý safnast þarna saman úr ótal áttum, til þess aö drepa
°g eta hvern þann, sem réynir að laumast burtu úr kastalanum. Ef að