Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Page 10
180
Tvær konur.
IÐUNN
Parisade var persnesk konungsdótlir. Móðir hennar
var alþýðuættar. Hún hafði hitt á óskastundina er hún
óskaði að verða drotning í Persalandi. Systur átti hún
tvær, sem öfunduðust ákaflega yfir láni hennar. Drotn-
ingin eignaðist 3 börn með manni sínum, 2 sonu og
eina dóttur, en systurnar, sem voru ljósmæður barnanna,
köstuðu þeim út um glugga niður í hallarsíkið. Sögðu
þær konungi að drotningin hefði fætt honum hvolp,
ketling og trédrumb og sýndu verksummerki. Konungur
varð að lokum svo reiður, að hann lét setja drotning-
inguna í opinn klefa og skipaði að allir, sem fram hjá
gengju, skyldu hrækja á hana. Þarna sat vesalings drotn-
ingin svo árum skifti. En það er af börnunum að segja,
að þeim var öllum bjargað af garðaverði kóngsins og ól
hann þau upp sem sin börn. Hann kallaði sveinana
Bahmann og Pervis, en stúlkuna Parisade. Lét hann
kenna þeim allar þær listir, er konungabörn mega prýða,
því að hann var auðugur maður. Þegar fóstri barnanna
dó, voru þau öll uppkomin, og arfleiddi hann þau að
öilu, sem hann átti. Þar á meðal var íbúðarhús, sem var
svo fagurt að hvergi gat annað slíkt. Ekkert vissu börn-
in um ætt sína. Einu sinni var Parisade ein heima. Þá
heimsótti hana gömul kona. Parisade sýndi henni húsið
og óskaði eftir áliti hennar um það. Kerlingin sagði að
þar vantaði ekkert á fullkomleika nema eina þrjá hluti:
Fuglinn talandi, tréð syngjandi og ljósgullna vatnið.
Fuglinn vissi alla hluti í jörð og á, tréð hafði munn í
hverju laufi, sem allir sungu í sífellu með yndisfögrum
hreimi, en vatnið bunaði í sífellu upp og niður og staf-
aði af því unaðslega töfrandi ljómi. Allir þessir hlutir
sagði kerling að væru á sama stað, á landamærum Per-
síu og Indíalands. Nú urðu systkynin óð og uppvæg að
n.■i í svo merkilega hluti. Fyrst lagði eldri bróðirinn af