Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Side 13

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Side 13
IÐUNN Tvær konur. 183 honum frá því áformi mínu að gerast prestur að loknu námi. Hann tók því hið versta; ég fann að hann var fjandsamlegur kirkjunni og taldi hana fara með þær kenningar, sem ósæmilegar væru og ekki frambærileg- ar greindum og hugsandi mönnum. Eg maldaði í móinn og sat nokkuð fastur við minn keip. Að lokum sagði hann með þeim fyrirlifningarsvip, sem ég aldrei gleymi: »Jæja karlinn! Klæddu þig bara í pokann og prédikaðu svo fólkinu að kona Lots hafi orðið að saltstólpa«. Ég fann að það taldi hann hámark vitleysunnar. Þessi orð urðu þess valdandi, að ég fór að lesa ritninguna með skynsemi en ekki gagnrýnilaust. Ég reyndi að finna vit í þeim sögum hennar, sem skynsemi mín sagði mér að ekki gætu verið sannar. Ég vildi ekki fyrirfram dæma þær vitleysu eins og kunningi minn síðar dæmdi sög- urnar í »Þúsund og ein nótt«. Sá lestur sannfærði mig alveg um að guðfræðin væri mest lokkandi allra fræði- greina. Það kemur ekki þessu máli við, að síðan þykir mér vænst um ritninguna af öllum bókum. Því þótt ég líti á flest rit hennar öðruvísi en almennast var litið fyrir nokkrum áratugum, þá hefi ég þó fundið þar undirstöðu undir lífsskoðun mína. Kona Lots og sagan af henni, sem þér öll kannist við, kemur aftur á móti þessu er- indi mínu við af því að hún var hin konan, sem ég ætl- aði að tala um við yður. Þegar ég sat nú þarna í þönkum yfir sögunni af Parisade, hvarflaði hugur minn til konu Lots, sjálfsagt vegna þess, hve atvikin voru lík að því, að ég öðlaðist frekari skilning en áður á sögum þeirra. Og ég spurði sjálfan mig: Eru ekki þessar sögur alveg hliðstæð æf- intýri ? Eiga þær ekki að flytja mönnunum sama sígilda sannleikann ? Hafa þær ekki í þúsundir ára verið heil- brigt veganesti á lífsbraut þeirra manna, sem hafa nent

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.