Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Side 18

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Side 18
188 Tvær konur. IÐUNN þakka það mest góðskáldunum okkar, sem hafa sungið hugsjónir sínar inn í hug og hjörtu þjóðarinnar. En lát- um svo vera, að hugsjónalíf þjóðarinnar sé að aukast. Þá er annað að, sem er jafnvel verra en þótt Mör- landinn héldi áfram að vera stirfinn. Því verður tæplega móímælt með fullum rökum, að þolleysið og lauslyndið sé að aukast með þjóðinni. Við stöndum nú á merki- legum tímamótum, íslendingar. Þjóðlíf vort hefir breyzt meir á síðustu 50 árum heldur en í 1000 ár fyrir þann tíma. Það er langt frá því, að ég finni ekki að um mjög margt hefir það breyzt til batnaðar. Frelsið hefir gert þjóðina víðsýnni, og andlegi þroskinn hefir aukist til stórra muna fyrir aukna mentun. Velmegun hefir vaxið og margskonar framfarir hafa komist hér á, sem engan dreymdi um fyrir 100 árum. En allar þessar framfarir og aukna mentun hefir líka sínar skuggahliðar, þótt ótrúlegt sé. Það er með það eins og oss sjálfa: ekkert er fullkomið í þessum heimi. Því meir sem sjónhringur mannanna víkkar, því meir langar manninn til þess að sjá og reyna hið fjarlæga. Við því er í sjálfu sér ekki annað en gott eitt að segja. Útþrá mannsandans er blessun, á meðan hún stefnir að einhverri ákveðinni, göfugri hugsjón. Ef útþráin er vakin af vaxandi skiln- ingi á því, að vér þurfum að leita þroskans — meiri og meiri þroska, — þótt leið vor liggi út að ystu endi- mörkum alheimsins, þá er hún fegursta gæfumerki mannanna. En stefni útþrá mannanna ekki að þroska- hugsjóninni, heldur að eins eitthvað út í bláinn, vegna þess að menn hyggi gæfuna einhversstaðar langt í burtu, frekar en í þeim sjálfum, þá er hún orðin böl. ]á, ein af skaðlegustu meinsemdum mannanna. Því miður ber þjóðlíf vort þess nú orðið nokkuð glögg merki, að þroskahugsjónin er ekki ráðandi leiðar-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.