Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Page 33

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Page 33
IÐUNN Vængbrotna lóan 203 skyttu að skjóta hana. Annars kvelst úr henni lífið af harmi eða kulda eða þá hungri. Um það bil þriggja vikna tíma dróst að jláta skjóta lóuna. Eg held, að mestu hafi valdið um dráttinn, að veðráttan var mjúk og mild. Svo var þar og um að kenna tómlæti mínu. Þenna tíma strjálaðist allt af, að til hennar heyrði. En það bar nokkrum sinnum við, að við sáum hana sitja stundarkorn á einhverri þúfunni. Eg býst ekki við, að illt hafi verið til fanga hjá henni þenna tíma, og réð tíðarfarið þar mestu um. En engu að síður var þó ömurlegt að sjá hana. Hún virtist ofur döpur og hrygg. Aldrei hélt hún uppréttu höfði, heldur lét það jafnan drúpa og sat í hnipri. Ólíklega mundi ekki til getið, að kvíðinn og áhyggj- urnar hafi svo sem drepið hana í dróma. Svo kom fyrsti haustsnjórinn, ekki býsna mikill, en vonum fyrr, eftir útliti að dæma. Snjóinn tók upp dægri síðar, og jörð varð jafn-auð sem áður. Andrés fór um Illareit að leita lóunnar. Hann fann hana undir þúfubarði — dauða. Þar tók hann henni gröf og götvaði hana síðan. Það varð bert, að lóuna hafði ekki skort fæði, og að ekki hefði verið verk í það leggjandi, að græða bein- brotið. Vængurinn var molbrotinn eftir haglaskot. — — Þegar við Andrés vorum að ganga heim túnið frá jarðarförinni, varpaði eg þessu fram við hann: — Heldurðu, að vængbrotið hafi orðið lóunni að bana? — Ekki er það ætlun mín, mælti hann. Og eg býst

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.